Ágætt er að horfa á Monty Python, já, nær allt Monty Python er svo fyndið að maður fer að spá í það hvort svona mikill hlátur sé hollur.
Ber þá að nefna sérstaklega þá snilldarkvikmynd M.P. and the Holy Grail, um Arthúr konung í leit hins heilaga bolla
Ég vil benda á að það er ekkert lélegt við Monty Python. Efnið sem Monty Python sendi frá sér var gott, viljandi.
Sammála Hakuchi. Monty Python er eðal.
Líka sammála. Að auki er það menningarlegt hneyksli að í kjölfar Kaupþingsauglýsinganna er komið í ljós að til virðist nokkur fjöldi fólks er eigi veit hver John Cleese er Ákveður að sú staðreynd sje nægjanlegt tilefni fyrir eftirfarandi: Hrökklast afturábak og hrasar við.
Að vita ekki hver John Cleese er? Fellur í yfirlið
Hvaða 'fólk' er það? Mér finnst að svipta eigi viðkomandi kosningarétti í það minnsta. Hugsanlega líka ökuskírteininu. Svona óvitum ætti ekki að treysta fyrir meiru en salernisþrifum.
Að vita ekki hver John Cleese er? Fellur í yfirlið
Einfalt. Stenst ekki. Fólk er bara að grínast í ykkur.
Big trouble in Little China
Pottþétt ein heilaalausasta og steiktasta mynd sem ég hef eytt tíma mínum í. Stærsta spurningin er hvernig Kurt Russell tókst að verða frægur!
Nýlega hef ég uppgötvað þennan gullmola: The Viking. Tekin upp í 1928, er hún ein örfáa kvikmynda í litum en án tals. Meira að segja er hún aðeins tvílituð. Þetta hét tvíbandalitur (two-strip Technicolor) á sinn tíma. Sem sagt, hún var ekki lituð á eftir en hreinlega tekin í tveim af þeim þremur litum sem við kunnumst við í kvikmyndum í dag. Allt grœnt -- og þar með allt gullt -- vantar. Mér skilst að hún sé sú eina svoleiðis mynd sem hefur varðveist í heild.
Hún er tær snilld, þó aðeins of róleg í miðjunni. Ég myndi mæla með henni, en hún fæst ekki í hvaða myndabandaleigu sem er.
Ég man ég horfði á Warriors þegar ég var ung og fannst myndin geggjuð þá. Hef ekki séð hana aftur og veit því ekki hvort hún eldist vel. En sonur minn, rétt skriðinn á táningsárin, var að horfa á hana í dag og er alveg heillaður og segir "hann er snillingur sá sem gerði þessa mynd". Ætli þetta sé merki um að myndin eldist vel eða að gelgjur allra tíma eru keimlíkar?
Ég hef alltaf ætlað mér að horfa á þá mynd til enda. Hún er sannarlega efni í góða lélega mynd. Þó ekki væri nema út af frábærlega hallærislegum búningum.
Mig minnir að Walter Hill hafi gert þá mynd. Meistari hins 5 metra afturhnykks og höfundur mikilla góðra slæmra mynda.
"Beyond The Valley Of The Dolls" er póstmódernísk snilld og líka náttúrlega súrmaturinn "The Incredibly Strange Creatures Who Stopped Living And Became Mixed-Up Zombies" en það er gory hrollvekja í anda Dans- og söngvamynda...
Ski school !
Einn besti viðbjóðurinn.
Hvar er Hakuchi ?Klórar sér í höfðinu
Ég sá alveg hræðilega vonda mynd um daginn: Hercules in New York. Þar leikur Arnold Strong (sem var sviðsnafn Gubernatorsins) Herakles sjálfan sem fer í frí, eftir mikið rifrildi við föður sinn Seif, til jarðar. Slagsmálinn við manninn í bjarnarbúiningnum (sem á þó að vera ekta björn) eru ægivond. Öll myndin er ægivond. Sem gerir hana hinu beztu skemmtan. Myndin var sýnd á sjónvarpsstöðinni DR2 og kynnirinn bað fólk að njóta myndarinnar, hún yrði ekki sýnd í sjónvarpi aftur næstu þúsund árin. Ég ætla rétt að vona að hann muni hafa rétt fyrir sér.