Hugsanafósturvís hárlausra apa
hérna má fettast í gnótt
menningarlortarnir mannanna hrapa
margir nú detta í nótt
Menning hvað er menning?
Manna allra verk!
Spenning meiri spenning,
splæsum drykk í kverk!
Svo maður sletti nú aðeins. BRAVÓ
Þetta þykir mér heldur betur hressilega kveðið.
-
Hafið þökk fyrir góð orð
Menningu drekk ég af móð
menningin rennur um blóð
um æðarnar æðir
óður og flæðir
svo kastast upp kvæði og ljóð