Ekki er meiningin að vísur og kvæði hér séu í beinu framhaldi af þeirri síðustu, heldur frekar innblásnar af innihaldi eða öðru.
Sem sagt sem sagt nokkurs konar kveðist á þráður þar sem ekki er skylda að nota síðasta orð sem það fyrsta.
Illmenni með íhaldssvip
öllu vilja ráða
ef á þeim hefði hentugt grip
hengdi ég þá báða
Kommúnistakröfunum
klæmst var ekki meir.
Hjá gúlagfjöldagröfunum
í gálga dingla þeir.
Flokka-drættir draga úr
dáð og hugsun manna
Fortíð þeirra byggir búr
bullið til að sanna
margur einn í flokki fer
frá því aldrei kvikar
þó hann verði á baki ber
bjánin ekki hikar.
(Þessi vísa hófst sem tilbrigði við ber er hver að baki &c en þróaðist út í neðangreint.)
Bræðra ekki böndin, kæri,
bindur föstum hnútum,
bjálfa tel ég betra væri
bagga- að kynnast -lútum.