Vjer vorum að ganga með formlegum hætti frá skattamálum vorum.
Ég legg það sama í belg og virðulegur herra Vladimir Fuckov.
Íhuga að senda bréf fyrir næsta ár. Herra skattstjóri ég segi hér með upp áskrift minni að skattframtalinu.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Með ákavíti í borðinu og gæða vindil er ég sátt. Og geri ekkert meira í dag. Nema kannski njóta ásta.
Ég var að loka ísskápsdyrunum með þeim afleiðingum að einhver hilla fór á mis og hrökk út úr skápnum.
Það hafði síðan þær aukaverkanir að tómatsósa hrundi í gólfið og mér tókst að grýta eggi á eftir henni.
Eitthvað segir mér að ég eigi ekki heima í eldhúsinu.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
...og núna var ég að dúndra fætinum í rúmið mitt. Djöfull var þetta vont!
...ég á greinilega ekki heima í svefnherberginu heldur...
Dæsir enn mæðulegar og lítur aftur út um gluggann
Gefur Tigru risastóran púða í rafmælisgjöf svo hún geti hent rúminu. Gefur henni einnig risastóra tunnu fulla af mysu svo hún geti hent ísskápnum.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Knúsar Úbba fyrir
Tígrisdýr eiga auðvitað að vera utandyra en eigi inni í ígildi búrs (þ.e. húsi) þar sem hægt er að reka lappirnar í allskyns dót Ákveður að sýna meiri framtakssemi en Reykjavíkurborg, mætir með stórvirkar vinnuvjelar og býðst til að rífa hús Tigru.
Komast að því að tvær vinkonur mínar eru óléttar og svo enn önnur viku of sein. Þarf ég líka eða?
Tígrisdýr eiga auðvitað að vera utandyra en eigi inni í ígildi búrs (þ.e. húsi) þar sem hægt er að reka lappirnar í allskyns dót Ákveður að sýna meiri framtakssemi en Reykjavíkurborg, mætir með stórvirkar vinnuvjelar og býðst til að rífa hús Tigru.
....ég var að læsa mig úti....
Þetta er alveg ekki minn dagur!
Ég held að Vlad hafi rétt fyrir sér, ég á bara ekki heima í húsi!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Opnar aftur og tekur úr lás svo Tigra læsi sig ekki úti af Baggalút líka
Ég var að brjóta spangirnar á gleraugunum mínum. Veit ekkert hvernig ég fór að því, né hvernig það gerðist.
Veltir fyrir sér hvort hún hafi verið brottnumin af geimverum eða eitthvað
Gera mig húsum hæfan... erfitt...
Eta tekex með túnfisksalati. finnur fyrir ónotum í maga Hvað geymist túnfisksalat lengi?
Það er að sjá sem það geymist allavegana stutt í maganum á þér....
Ég held að Vlad hafi rétt fyrir sér, ég á bara ekki heima í húsi!
Semsagt ekki húsum hæf.