Ég er yfirleitt skotin í þeim sem er skotinn í mér. Það er svo jákvætt.
Nú er ég pínulitið skotinn í þessu apaskotti. En kannski ruglar mig að ég ætti að vera sofandi núna. Spái betur í þessu skoti á morgun.
Skríður út í skot að sofa
Ég er yfirleitt skotin í þeim sem er skotinn í mér. Það er svo jákvætt.
Líklega höfum vjer einhverja tilhneigingu líka til að fylgja þessari reglu en gallinn við þetta er þó sá að málin flækjast ef vjer vitum eigi hver er skotin í oss. Verðum vjer þá yfirleitt að gera undantekningu frá reglunni enda afar óheppilegt að vita hvorki hvað vjer erum skotnir í mörgum nje að vita hverri/hverjum vjer erum skotnir í Klórar sjer í höfðinu.
Ég er einstaklega skotinn í Dulu þessa dagana.
Glottir eins og fífl
Mig dreymdi hinn fullkomna mann í nótt, ég er skotin í honum.
Engum, þannig fær enginn tækifæri til að rífa hjartað úr brjóstholinu á mér og trampa a því... Dæsir mæðulega og íhugar að leita til sálfræðings vegna þunglyndis.
Ég er rosa skotinn í Síra V Fuckov sem er brjálæðislega mikið krútt í hempunni sinni og kraga
<STRUNSAR ÚT AF SVIÐINU OG SKELLIR Á EFTIR SJER>
Ég er ennþá skotin í þeim samaGefur frá sér vellíðunarstunu
Ég er ennþá skotin í þeim samaGefur frá sér vellíðunarstunu
Ég líka held ég bara. Gæti þó hugsast að ég fari að hugsa mér til hreyfings til tilbreytingar.
Glottir eins og fífl
Ég er skotin í lalala la viu viu! Ljómar upp
Ég er rosa skotinn í Síra V Fuckov sem er brjálæðislega mikið krútt í hempunni sinni og kraga
Ég er einnig skotinn í honum, ekki síst eftir þetta krúttlega brjálæðiskast hér fyrr á þræðinum.
Ég er hættur að vera skotinn nema ég verði skotinn í hausinn með byssukúlu.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég er rosa skotinn í Síra V Fuckov sem er brjálæðislega mikið krútt í hempunni sinni og kraga
Ég er einnig skotinn í honum, ekki síst eftir þetta krúttlega brjálæðiskast hér fyrr á þræðinum.
Já það liggur við að ég verði það bara líka.
Ég held áfram að vera skotin í spegilmyndinni.
Ég stend einmitt í málaferlum við mína vegna meintra meiðyrða.
(Þetta er pínukunnuglegur brandari fyrir þá sem þekkja til.)
Ég er nú mun meira en skotinn.... ég er alveg ástfanginn uppí hvirfil....af Næturdrottninguni, svona svo það sé á tæru.
Hefur þú prufað að mála spegilinn með svartri málningu og mála svo gula mynd á hann þér til hughreystingar? Ég er oggu skotin í þér.
Ég er nú mun meira en skotinn.... ég er alveg ástfanginn uppí hvirfil....af Næturdrottninguni, svona svo það sé á tæru.
Ágætt að þú tókst þetta fram með hvirfilinn líka. Það væri ferlegt ef við héldum að þú værir bara ástfanginn af henni rétt svo upp að pung.