Ha! Er Herbjörn að verða hundrað ára?
Langleiðina... ekki alla leið kjánabollan þín.
Munið það að 49 vantar bara einn í hálft hundrað.
Varstu nokkuð búinn að leggja leið þína í Innflytjendahliðið? Við erum með svolítinn hóstar ofurlítið glaðning handa þér þar.
Sælinú karlar og sumar kvenna.
Hér er mér eigi til setunnar boðið. Fyrir margt löngu stofnaði ég hér aðgang en sá er fyrir löngu týndur og tröllum gefinn.
Nú er ég forvitin!
Sælinú karlar og sumar kvenna.
Hér er mér eigi til setunnar boðið. Fyrir margt löngu stofnaði ég hér aðgang en sá er fyrir löngu týndur og tröllum gefinn. Nú ríð ég inn á ritvöll gestapó sem aldrei fyr. Hafið af mínum orðum gaman, en hendið eigi að mér sjálfum gaman. Þá verður örugglega gaman.
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann?
Springur úr hlátri... langt síðan ég hef heyrt vitnað í þennan texta... velkominn... xT
Sælinú karlar og sumar kvenna.
Hér er mér eigi til setunnar boðið. Fyrir margt löngu stofnaði ég hér aðgang en sá er fyrir löngu týndur og tröllum gefinn. Nú ríð ég inn á ritvöll gestapó sem aldrei fyr. Hafið af mínum orðum gaman, en hendið eigi að mér sjálfum gaman. Þá verður örugglega gaman.
Vill einhver elska 49 ára gamlan mann?
Pant ekki.
Hvert fór Stinni stuð?
Það vildi enginn elska hann.
Jú ég!
Ég man að vísu ekkert eftir að hafa viljað það en úr því að ég segi það hlýtur það að hafa verið.
Það er nefnilega það. Klórar sér í höfðinu og segir með semingi Ég segi þaaað... Gæti ég hafa skipt um skoðun? Það yrði þá ekki í fyrsta skipti.
Ég held að hann Stroffi hérna hafi týnt aðgangnum sínum aftur. Klórar sér í höfðinu