Jú, það er alveg gasalega krúttlegt.
Það er nú kannski að eigin undirlagi sem hann byrjaði þetta. Hann hefur líklegast vitað að þetta myndi snúast upp á hann. "Herr Fuckov" hefur náttúrulega verið harðstjóri hér í langan tíma og hefur þótt vanta dálítið uppá á ímynd sína um hversu mjúkan mann hann hefur að geyma.
...stundum.
...innan við beinið.
...inn að merg.
Grey litla knúsurassgatið.
Sjáið þið ekki hvað þið eruð búin að gera?
Þið eruð búin að hrekja krúttipúttið burt.
Eruð þið enn að hanga í þessu krúttmáli ? Klórar sér í höfðinu Hann er rúsínubolla með sultu og sméri og hananú ! Stekkur hæð sína
Tengt Mexíkönum; ég hef aldrei vanist orðinu fógeti - skerfari er mun betra. Og Sara Berhardt verður alltaf Sara Beinharða rétt eins og Calamity Jane verður um eilífð Svala Sjana.
Og Billi Barnungi og Vætu-Erpur heita ekki öðrum nöfnum í mínum huga Ljómar upp
Ég vil að orðskrípið Evróvisjon verði bannað með lögum og 20 vandarhögg liggi við brúkun þess orðs.
Sammála Nermal!
Já ég hef aldrei skilið þetta. Afhverju að breyta Euro í Evró en láta vision standa óþýtt?
Ert þú sumsé ábyrgur fyrir þessu?
ef ég man rétt þá var þetta málamiðlun og þær eru nú aldrei heppilegar.
Ég á bágt með að trúa því.
Pottþétt ein af þessum lélegu fylleríishugmyndum.
Ég fæ bara góðar hugmyndir þegar ég er fullur. Verst að ég man ekki alltaf eftir þeim.
Mér finnst það ekkert voðalega góð hugmynd að hlaupa á vegg.
Já eða drekka svo mikið ákavíti að þú ratir ekki heim til þín.
Nei ég er algjörlega ábyrgðarlaus.
Það vitum við vel.