Mafíuforingjar...
Foringi stærstu fjölskyldunnar á Sikiley er töff, Aggi Pó er það ekki.
Samskiptaform.
Gamaldags sendibréf og gamaldags stefnumót eru óendanlega töff, sms, msn , og allar þessar skammstafanir eru fínar en ekki eins töff.
Titill á íslensku lagi.
Öskulag af völdum Heklu er töff en drullulag úr íslenskri mold er ekki töff.
Veður
Lakkað steinsteypugólf með fokdýrum teiknimyndasögum í lakkinu eru töff, niðurlímt gegnheilt parket er það ekki.
Blá matvæli.
Aðalbláber út á ís eru töff, bláar kartöflur eru það hinsvegar ekki.
Drekar
Amma Dreki er töff, karlmannsnafnið Dreki er ekki töff.
Verkfæri.
Kaðjusög er töff, Hrífa ekk
Dægradvöl
Hnífabardagar eru töff, útsaumur er það ekki.
Gæludýr.
Kattardýr eru töff (því stærri því meira töff), gúbbífiskar eru algjörlega gagnslausir og ótöff.
Húsdýr og/eða aðrar nytjaskepnur.
Íslenska kýrin er übertöff, holdanautgripir eru alls ekkert töff.
Fararskjótar
Mótorhjól með hliðarvagni er töff, Impreza með kraftpústi og spoilerkitti er ekki töff
Sjónvarpsþættir.
CSI þættirnir eru töff, Melrose Place er ekki töff.
Bókmenntir
Hryllingssögur eru töff, rauða serían er það ekki
Hljóðfæri?
Fender stratocaster er töff Túba er það ekki.
Formúlulið?
Efnafræðingar eru töff - stærðfræðingar eru það ekki.
O, ég er svo fyndin.
Líkamsskart.
Bein í nefi er töff, Hringir í sníp og gervörtum er það ekki
Höfuðborgir
Kaupmannahöfn er töff, Reykjavík er það ekki.
Smábæir.