Tveir menn eiga í nokkuð aggressívum samræðum við skerfara nokkurn. Annar mannanna teygir sig í vindil skerfarans og kveikir með honum í sínum eigin. Með því halda þeir út. Þeir búa sig til að stela hestum skerfara, en hann sér þá. Maðurinn með vindilinn notar hann þá til að kveikja í dýnamítstöng sem hann varpar inn á skrifstofu skerfara, en sá síðarnefndi kemur hlaupandi út í óðagoti og kastar sér á jörðina um leið og dýnamítið springur.
Terence Hill og Bud Spencer?
Hvorugt. Takk fyrir þátttökuna. Veifar
Þetta er sennilega einhver Eastwood mynd. Ah, nei, hún sagði hvorugt.
Hm...
Nei, nei...nei. Myndin er frá árinu 1999. Fjórir aðalleikaranna eru kannske þekktari fyrir annað en leik.
Tombstone?
Ekki Tombstone. Einn aðalleikaranna hélt tónleika hér á landi fyrir ekki svo löngu. Ég fór á þá.
Nei. Viðkomandi er afkastamikið söngvaskáld (singer/songwriter). Hann er fæddur árið 1936.
Kris Kristofferson. Myndin ætti þá að koma síðar - kannski. Held ég hafi meira að segja örugglega séð hana.
Cliffi Richards?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Burt meððig! Svona, sjú! Sjú!
Kris er maðurinn.
Útlaga Réttlæti? Verð samt að játa að ég googlaði!!! Starir þegjandi út í loftið
Samkynhneigt vélmenni sem gúglar. Nú hef ég séð allt. Slær sér á lær
Jú, þarna er komin rétt mynd, þó hún heiti The Long Kill í útgáfunni sem ég hef undir höndum. Hún fékkst á 400 krónur í snilldarversluninni Tiger (Tíer, ekki Tæger!)
Rétturinn er hýru ryðdollunnar.