Maybe no or maybe yes, ég man það ekki.
Var hann forn og frægur Tékki
frelsarann ég eigi þekki.
Þekki ég í þaula nokkrar þýðar góðar.
mismikið þó mjög svo fróðar,
mættu vera oftar hljóðar.
Hljóðar óðar heitar rjóðar helst þó mjóar
Meyjar skarinn seðlum sóar
sérstaklega þegar snjóar.
Snjóar aftur Snæfinnur er snúinn aftur.
Honum jukist hefur kraftur,
þó helvítið sé fylliraftur.
Fylliraftur finnur aftur flösku góða
Gefur vinum vill þeim bjóða
vænan slurk af sínum gróða.
Gróða tel ég tæpast vera í titlum fólginn.
Þó margur sé í metorð sólginn;
það margan hefur knésett dólginn.
Dólginn þekki dansandi í dyragáttum.
Hagnast lítt á nautnanáttum
nema ég og stelpan háttum.
Hátta brátt og halla mér á heitum beði.
Hvílist víst frá vinn' og streði,
vona að ég haldi geði.
Geði hef ég gjörsamlega glatað öllu.
Viti mínu voða snjöllu,
vantar orðaskák við Höllu.
Hallar undir öðrum fæti ofurlítið.
Þetta finn ég bara'í bítið
bölvað gólfið er svo skrítið.
Skrítið er að skrönglast um á skökku gólfi.
Göngu- nýtast hækjur -Hrólfi,
hendist um sem skotið kólfi.
Kólfi líkast karlinn rauk að kaupa vínið.
Vímus heitir vesælt svínið
viðbóðslegt er greppitrýnið.
Greppitrýnið greiddi á sér grásprengt strýið.
Mykjuflugan söng – og mýið
meðan að það sökk í dýið.
(Aðeins of langt á milli stuðla í línu 2.)
Greppitrýnið greiddi á sér grásprengt hárið.
Það er meira fjandans fárið,
fýrverkið um nýja árið.
þakka ábendinguna, kann þetta eiginlega ekki en skemmtilegu háttur.
Árið liðið enn er skriðið aðrar brautir.
Kanna fleiri kvennalautir,
kannski rætast draumar blautir.
Blautur Andþór enn er bak við eyrun, drengur .
Vex hans þó hér viska og fengur,
varla' af honum rennur lengur.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Lengi get ég ljóð og visku lært af ykkur.
Er ég nokkuð eitthvað þykkur,
asnalegur hrokagikkur?