Sundlaugur er heiðursmaður sem menn bera mikla virðingu fyrir.
Andþór er allur pakkinn, fyndinn, skemmtilegur, viðræðuhæfur og sætur.
Aulinn er flott stelpa með kollinn í lagi.
Regína ber af öðrum konum í dugnaði og elskulegheitum. Svo bakar hún svo góðar kökur líka.
-
Limbri er virkilega fyndinn. Alltaf getur hann komið mér til að hlæja.
Andþór er góður í að yrkja, ekki það að ég viti mikið um það... hans kvæði skil ég allavegana oftast.
Aulinn er kraftmikill unglingur kallar ekki allt ömmu sína.
Sundlaugur er ótrúlega ern og ber vel sinn háa aldur.
Herbjörn er til fyrirmyndar og dáður af öllum viti bornum mönnum!
Andþór er mikill fjörkálfur og hvarvetna aufúsugestur, svo er hann svo góður í þýzku.
Sundlaugur mun synda á himninum eftir þetta líf, algjört gæðablóð!
Andþór er hoppandi skoppandi skemmtilegur!
Aulinn er friðland dýra í útrýmingarhættu (flatlúsar, herpesveiru, sýfilissýkils...)
Ef Gestapó væri ævintýri þá væri Aulinn prinsessan!
Tina er eldklár og snögg í tilsvörum.
Andþór er með afskaplega kyssulegar varir.
Alltaf þegar ég sé þráð þar sem Andþór gjammaði síðast þá ýti ég strax á hann.
Mér þykir alveg rosalega vænt um Aulann og myndi knúsa hana núna ef ég gæti!