Gerist vinur Ragnars Sæll félagi Ragnar það er alltaf gaman að sjá góða menn. Verður starsýnt á vistirnar hjá Ragnari Já og allt er hey í harðindum mér er nokk sama hvernig það bragast ef innihaldið er áfengt. Tekur í hönd Ragnars Starri heiti ég og þér eruð ávalt velkomin í mín hús
Velur sér neðri kauju til að sofa í. [s] Setur á rúmstæði sitt bleiku náttfötin og viskí pelann undir koddann. Sundfötin sín á herðatré við ofninn, opnar út gluggann og dregur að sér uppáhalds ilm sinn af sjávarseltu.
Skokkar fram í eldhús, því þar er skemmtilegasta fólkið við opinn glugga
Svona, Tígri minn, vertu nú kátur og njóttu dagsins. Þú ert nú einu sinni á Ýsufirði og ég ætla segja þér gamlan húsgang héðan
Á Ýsufirði er alltaf gott
enginn má þar kvarta.
Fáir hafa flutt á brott
úr firðinum unaðsbjarta.
Og mundu það nú, karlinn minn.
Laumar vasapelanum sínum, sem inniheldur ekta norskt "Linje-Akvavit" að Tígra.
Tekur við pelanum og felur hann í snatri
Eins gott að óvnir ríkisins komist ekki þetta.
Gerir bragðprufu
Mikið ljómandi er þetta gott.
Ljómar upp
Hendir dótinu sínu upp í kojuna fyrir ofan Grýtu og drífur sig þangað sem skemmtilega fólkið er
Tekur frá svæði við arininn í stofunni á loðfeldinum sem þar er
Hér er mitt svefnpláss.
Hringar sig saman og dreypir á Ákavíti
Kem með helling af sneiddu hangikjeti, harðfisk, smjeri og flatbauði.
Segi hátt og snjallt
Gerið svo vel kæru gestir. Matur er framreiddur. Gerið honum góð skil og verði ykkur að góðu.
Fær sér harðfisk með miklu smjöri
Mmm, kræsingar. Fær sér að borða Það er aldeilis, fyrst hnausþykkt súkkulaði og vöfflur, svo þetta. Það á ekki að svelta mann þó maður verði veðurtepptur.
Rankar við sér í Vatnehúsi, röflandi
Á Ýsufiri er attav gott
enginn má ðaþ kvatta.
Fáir hafa flutt á brott
úr fiþinum unaðsbjatta.
Sofnar
Ræður sér ekki af gleði Það langt síðan það hefur verið svona fjörugt í Vatnehúsi, þó hér sé nú alltaf gaman.
Endilega skemmtið ykkur vel og njótið veitinganna. Ef einhver vill skreppa í sund þá er laugin opin.
Já og vertu velkominn, Ragnar minn, auðvitað er þér líka boðið.Sumir virðast líka svo einstaklega kátir að sjá þig hérnaKlórar sér í höfðinu
grípur eina flatköku og röltir svo í átt að sundlauginni
Setur jólalag Baggalúts á fóninn og dillar sér
Sundi viltu dansa?
Ljómar upp
Ó, já
Hneigir sig, grípur Tigru í fangið og svífur með hana um gólfið
Góða nótt. Lætur sig hverfa í kauju með harðfiskstrengsli, smjöri og lúðuritlingi ásamt vænni sneið af hangiketinu með baunum og uppstúf.
Góða nótt, Grýta mín, takk fyrir í dag.
Sofðu vel Sundlaugur. Takk fyrir og til hamingju með daginn.
Kyssir Sundlaug létt á kinn og ranglar á kauju sína.
Mætir í leigubíl til rafmælisveislu Sundlaugs
Góða nótt hvað! Er rafmælið búið á miðju kvöldi? Hrökklast aftur á bak og hrasar við Ég trúi þessu ekki.
Er ekki eitthvað eftir af fljótandi veitingum?
Dregur Herbjörn í eldhúsið Hvað sýnist þér?