Gúffar í sig nokkrum vöfflum og drekkur kakó með
Þú ert öðlingur heim að sækja Sundlaugur!
Takk, Útvarpsstjóri Ljómar upp
Heyrir knúið dyra og lýkur upp fyrir utan stendur Skapti, frekar áhyggjufullur.
Þeir ræða saman í hálfum hljóðum.
Skokkar niður í sundlaug og ætlar að segjast vera send af þeim Vatnebræðrum
Skilur ekkert í því þegar Berglind hleypur æpandi og öskrandi út áður en súg nær að opna munninn
Fer samt í sund
Rétt nær að næla sér í kökubita
Kemur rennblaut skokkandi að Vatnehúsi
Hefur vit á að hrista sig áður en hún fer inn
Vöfflur segiði?
Já, gerðu svo vel, Tigra mín
Stendur upp á stól og ræskir sig
Kæru félagar, ég er svo innilega þakklátur og hamingjusamur að þið skilduð öll koma hingað og samgleðjast mér á rafmæli mínu verður klökkur en mér þykir leitt að tilkynna ykkur að heimferð strandararskipsins hefur verið seinkað. Þó hér á Ýsufirði bærist alla jafna ekki hár á höfði, frekar en nú í dag, þá var hann Skapti að segja mér að það er arfavitlaust verður fyrir utan fjarðamynnið og skipið fer ekki héðan fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið.
Kemur hjólandi inn í þorpið á Ýsufirði, gengur inn í Vatnehús. Sæl, öll ég missti af skipinu en vildi alls ekki missa af vöfflu kaffinu svo ég kom bara hjólandi, eru ekki annars allir í stuði ?
Blessaður, Arfi sæll og velkominn.
Hætt er annars við að dvöl þín eigi eftir að verða lengri en þú hafðir ætlað.
Já, gerðu svo vel, Tigra mín
Stendur upp á stól og ræskir sig
Kæru félagar, ég er svo innilega þakklátur og hamingjusamur að þið skilduð öll koma hingað og samgleðjast mér á rafmæli mínu verður klökkur en mér þykir leitt að tilkynna ykkur að heimferð strandararskipsins hefur verið seinkað. Þó hér á Ýsufirði bærist alla jafna ekki hár á höfði, frekar en nú í dag, þá var hann Skapti að segja mér að það er arfavitlaust verður fyrir utan fjarðamynnið og skipið fer ekki héðan fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið.
Þú hefðir hvort sem er ekki losnað við okkur svona auðveldlega. Glottir
Held að allir séu til í að vera aðeins lengur.
Þetta þarf ekki að vera neitt vandamál.
Er fólk ekki bara ánægt að vera aðeins lengur á Ýsufirði? Hér er alltaf gott veður og nóg að bíta og brenna. Enda segir í gömlum húsgangi:
Á Ýsufirði er alltaf gott
enginn má þar kvarta.
Fáir hafa flutt á brott
úr firðinum unaðsbjarta
Finnur vöffluilminn í loftinu og ratar á rétta húsið. Knýr dyra í Vatne húsinu eftir yndislegan göngutúr, með krókaleið um listigarðinn frá sundlauginni.
Já, gerðu svo vel, Tigra mín
Stendur upp á stól og ræskir sig
Kæru félagar, ég er svo innilega þakklátur og hamingjusamur að þið skilduð öll koma hingað og samgleðjast mér á rafmæli mínu verður klökkur en mér þykir leitt að tilkynna ykkur að heimferð strandararskipsins hefur verið seinkað. Þó hér á Ýsufirði bærist alla jafna ekki hár á höfði, frekar en nú í dag, þá var hann Skapti að segja mér að það er arfavitlaust verður fyrir utan fjarðamynnið og skipið fer ekki héðan fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið.
Já já þetta er allt mér að kenna ég veit.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Vei! Það er nú bara gaman að fá að vera hérna aðeins lengur!
Annars kom ég nú ekki með neinn pakka með mér Sundi minn. Ég sendi þér hann nefninlega í pósti sjáðu til. Vona að það sé í lagi.
Bombar upp gömlu appelsínugulu tjaldi
Pláss fyrir allavegana fjórar hjá mér.
Ljómar upp
Það er allavega nóg pláss í Vatnehúsi og nú verður bara stuð í kvöld og fram á nótt. Svona margir vinir mínir samankomnir á Ýsufirði á rafmælisdegi mínuStekkur hæð sína.
Þetta er bezti rafmælisdagur sem ég hef átt. Í kvöld tekur Vatnar svo til fyrir okkur hangiket og harðfisk og veizlan heldur áfram.
Mikið er gaman að þið skuluð taka þessu svona vel og hafir þú átt einhvern þátt í þessu, Arfi sæll, þá ertu bara betri fyrir vikið.
Ég er líka búinn að tala við Berglind og hún ætlar að hafa sundlaugina opna frameftir ef einhverjir skyldu vilja fara aftur í sund og hún veit núna að það þarf enginn Ýsfirðingur að óttast Tigru og Tigra.
Verið bara innilega velkomin í... já, eigum við ekki bara að segja "helgarferð til Ýsufjarðar".
Það ættu allir að finna sér stað einhversstaðar til að hreiðra um sig í nótt og Vatnar lætur alla hafa teppi til að vefja utan um sig.
Skipið fer í fyrramálið og við göngum bara niður að bryggju saman eftir morgunverð og þá siglið þið heim á leið.
Mikið er ég hamingjusamurLjómar upp
Endilega fáið ykkur meiri vöfflur og súkkulaði.
Heyrðu annars Ríkisarfi, þú getur bara tekið hjólið þitt með á skipinu á morgun.
Gúffar í sig vöfflum með rjóma og rabbarbarasultu
Þetta er nú meiri myndarskapurinn. Takk kærlega fyrir mig.Stendur á blístri
Eigum við ekki að slá í slag úr því að svona er komið?
Hámar í sig vöfflur og makar rjóma út um allt
Fer inn í eldhús og kannar hangikets og harðfisksbirgðirnar og kemst að því að það verður til nóg fyrir alla. Veltir því fyrir sér hvort Rósin sé meðal gesta. Alla vega er hann enn ekki búinn að koma auga á hana.