Hrökklast aftur á bak og hrasar við Hérna, fæ ég stimplun? Einhver? Klórar sér í höfðinu
stimplar Ágæti með súpuketsstimpli
Beygist nafnið þitt ekki eins og "Auður"?
Það myndi vera:
Hér er Ágætur
Um Ágæt
Frá Ágæti
Til Ágæts
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Hérna, fæ ég stimplun? Einhver? Klórar sér í höfðinu
stimplar Ágæti með súpuketsstimpli
Beygist nafnið þitt ekki eins og "Auður"?
Það myndi vera:
Hér er Ágætur
Um Ágæt
Frá Ágæti
Til Ágæts
Nei, ég var nú að tala um kvenmannsnafnið.
Abbababb!
Þú þarft nú að vera búinn að vera hér aðeins lengur til að geta farið að skrifa gáfulegt félagsrit - ekki satt?
Í öllu falli þarftu að næla þér í einkennismynd og skrifa svo sem eins og 50 sinnum á spjallið.
Skil ég það ekki rétt að ég ætti auðmjúklegast að geta náð mér í einkennismynd eftir 10 innlegg?
Sé bara þennan svargrængolandi bakgrunn alauðan ef ég reyni að athafna mig í þá veru...
Það er vel hugsanlegt að Enter og Ritstjórn öll hafi ekki gefið af sínum dýrmæta tíma til að uppfæra myndasafnið.
Vertu annars velkominn Heimskautafroskur. Ég ætla rétt að vona að þú drekkir aðeins almennilegt kakó, mallað úr úrvalshráefnum í stórum pottin? Því hér er svissmiss og neskvikk talið með verstu refsingum!
Aha. Þakka kveðjuna. En sko, súkkulaði skal það vera. Með þeyttum rjóma – og þá meina ég rjóma, ekki raksápugums úr úðabrúsa!
Hvernig dettur þér í hug að hér sé rjómi úr úðabrúsa! Hverjum dettur slík fásinna í hug!
Hér er annað hvort alvöru rjómi eða enginn rjómi! Svipast um eftir Zetornum hans Hvæsa.
Auðvitað, hefði getað sagt mér þetta sjálfur. Þegar ríki starfrækir kakómálaráðuneyti er augljóst að metnaður er verulegur þegar kemur að þessum mikilvæga málaflokki.
Ljómar upp
Sko hvað froskurinn er vel gefinn!
Ertu búinn að senda Enter einkapóst til að fá mynd?
Mig hefur alltaf langað til að sjá hvernig heimskautafroskar líta út.
Örugglega bláir! (úr kulda)
SKO!!! Mamma verður stolt þegar hún sér hvað froskurinn hennar myndast vel. Og enginn vandi að halda kúlinu með svona gleraugu! Kærar þakkir.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Ertu munnstærri en Andþór?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ég vissi að þú værir blár!
Hæ fævar froskinn
Guð blessi þennan frosk! xT
„... ef hann sé til!!"
Vér kvökum og þökkum.
Guð blessi þennan frosk! xT
Út af því að hann er blár, eða út af því að hann er með stærri munn en þú?
Fellur í óstöðvandi grát
En... en.. en hvernig get ég þá gert grín að Andþóri úr þessu ?
Gefur Heimskautafroskinum Hæ fæv á meðan hann hrærir smákökudeig í kjaftinum á honum
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Ertu munnstærri en Andþór?
Ég hef einmitt verið að velta fyrir mér munnstærðum: Altmuligmanden, Andþór, Heimskautafroskurinn og var/er ekki Dýrið svona gaphúsgleitt líka? Ætli þeiru séu ekki allir skyldir bara?
Setur hugsandi í brýrnar
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Hérna, fæ ég stimplun? Einhver? Klórar sér í höfðinu
Noh, bara kolamoli
Auðvitað færðu stimpil Stimplar barbarann Þetta tryggir það að þú færð verri afgreiðslu í verslunum og ert alltaf aftastur í leigubílaröðinni