Ég á bágt, en ég á líka ofur góða, plútóníumstyrkta kóbalt regnhlíf. Glottir í öruggu skjóli.Vertu ekki feiminn Hvæsi minn, slepptu öllu þessu innibyrgða út. það ert óhollt að ganga með svona innra með sér lengi. Það getur valdið langvarandi kvölum´..
Meðan það veldur ekki hvölum þá er það í lagi.
Hvernig fæ ég almenningslega mynd?
Ætli þú verðir ekki að fara sömu leið og við hinir innflytjendurnir (núna er innflytjandi í karlkyni, hafa feministar ekkert að segja um það) og komast í gegnum þetta hlið og biðja svo Enter hinn fagra um sæta mynd af þér.

Innflytjendur geta líka verið kvenkyns. Náskyldar stokköndum og blesöndum.
Hvað um sjér hannaða Sloppa? Þarf ekkert að biðja um þá? Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ítrekar beiðni frá því fyrir mörgum blaðsíðum síðan
Hey, Sloppur, áttu nokkuð nýliðaslopp í þúsundsinnumextra-small fyrir maurinn?!
Klórar sjér í skegginu Heyrðu, jú, en hann er samt rauður á litinn!
Hvað um sjér hannaða Sloppa? Þarf ekkert að biðja um þá? Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Ég minni þá á, Sloppur minn, beiðni mína á blaðsíðu 58.
Ég óska eftir móttökum sem mér sæmir. Sloppur væri vel þeginn og jafnvel inniskór ef þeir fylgja með.
Inniskór?! Það er nú meira hvað aum nýliðagrey geta verið kröfuhörð!
Hvað eigum við nú annars að gera við þig? Gengur hugsi á svipinn í kringum nýliðann og mælir hann út með augunumStaðnæmist fyrir aftan hann og hrindir honum framfyrir sig ofan í gamla góða tjörupollinn HAH, þú hefðir ekki átt að standa akkúrat þarna!
Heimskautafroskur leitar hælis í Baggalútíu. Hefur stolist til að krota lítið eitt í Kveðist á síðustu dægrin... telur sig sjá hér samfélag sem hann gæti samsamað sig, enda galinn og með stafsetningaráráttu (þótt oft sé hann latur að nota hástafi á lyklaborði). Hvort froskur þessi bæti eða fegri samfélagið, hlotnist honum hælisvist, er hins vegar alls óvíst.

Þú gætir kannski byrjað á að laga þessa vísu á Kveðist á?
Veistu hvar er vín að fá?
Er voðalega þyrstur.
Opna finn ég hvergi krá
og klerkurinn var byrstur.
H stuðlar ekki við K, síðast þegar ég vissi.
H stuðlar ekki við K, síðast þegar ég vissi.
Það hélt ég líka... aftur á móti ef á eftir h-inu fylgir v, þá gæti framburður krafist þess að það verði að stuðla við k... (menn eru þó misjafnir með þetta eins og annað)... xT
Þessu er ég reyndar ósammála. Í minni heimasveit við utanverðan Eyjafjörð er alla vega löng hefð fyrir þessu. Og framburður hv sá sami og k. Ekki þar fyrir, það má alveg reyna að endurvinna vísupartinn...
Þá ertu mér sammála en ekki ósammála...
Akkúrat. Var að andmæla Krossgötu. En í ljósi þess að vera auðmjúkur hælisleitandi þori ég ekki annað en verða við tilmælunum:
Veistu hvar er vín að fá?
Er voðalega þyrstur.
Opna finn ég kannski krá
og kem þar allra fyrstur.
Starir þegjandi út í loftið
Þessu er ég reyndar ósammála. Í minni heimasveit við utanverðan Eyjafjörð er alla vega löng hefð fyrir þessu. Og framburður hv sá sami og k. Ekki þar fyrir, það má alveg reyna að endurvinna vísupartinn...
Á hinu flata suðurlandi gera menn skýran greinarmun á hv og kv framburði og fyrir svona vísnagerð gætirðu lent í tjörupollinum við hliðina á Játvarði ef ég fengi að ráða.. Ræður engu..
Þú ert krútt froskur sæll. Vel gert!
Þú tilheyrir líka undir mínu ráðuneyti.
Láttu mig vita ef einhver er vondur við þig.