Seinna fór hún sveitt á rall
svellköld bjóra lagði.
"Vil ég fjóra vini í skrall"
viljug hóran sagði.
Nú er úfinn á mér haus
eins og þúfnamelur.
Nú er úfinn á mér haus
eins og þúfumelur. (bara til að laga framburðinn)
Dagskrá RÚV er dæmalaus
sem djassað grúvið selur.
Stöðin sú á styrkum grunn
stendur nú sem áður.
Stöðin sú á styrkum grunn
stendur nú sem áður.
Opni stjóri útvarps munn
örar verður fjáður.
Klókir eru kjaftaskar
krókinn allvel mata.
Ég sé nú ekki að framburðurinn batni mikið við þetta, ef eitthvað er hann bara blæbrigðaminni. Auk þess eru fleiri en ein þúfa á þessum mel.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Nú er úfinn á mér haus
eins og þúfumelur. (bara til að laga framburðinn)
Dagskrá RÚV er dæmalaus
sem djassað grúvið selur.
Stöðin sú á styrkum grunn
stendur nú sem áður.
Stöðin sú á styrkum grunn
stendur nú sem áður.
Dagskrársúpan þar er þunn
og þvæld sem dúkur snjáður.
Lestu blöðin, bróðir sæll
bölvuð stöðin lýgur.
Lestu blöðin, bróðir sæll
bölvuð stöðin lýgur.
Í valtri röð með veikan hæl
í vindinn glöð hún mígur.
Hægt um vik ég held að sé
henni á strik að ná sér.
Hægt um vik ég held að sé
henni á strik að ná sér.
- Daman stikar hölt á hné
og heldur um spikið á sér.
Upp á heiðar oft ég fer
einn að veiða fugla.
Upp á heiðar oft ég fer
einn að veiða fugla.
Vængjasneiðar hef ég hér:
Haförn, skeiðönd, ugla.
Ansi dræm var hittnin hrein
ég hökti, slæm var gigtin.
Höfum þetta þá örlítil öfugmæli:
Ansi dræm var hittnin hrein
ég hökti, slæm var gigtin.
Grenin tæmast ein og ein
ansi næm er lyktin.
Refaskytta rjúpurnar
reyndi að hitta skotum.
Refaskytta rjúpurnar
reyndi að hitta skotum.
Komu'þau mitt í kúpurnar
í kúlutitttabrotum.
Ný orð gjarnan gera mun
ef gerist harðnað rímið.
Ný orð gjarnan gera mun
ef gerist harðnað rímið.
Ekki varnað verður grun
hvort vilj'ann barna svínið.
Feyjurísið firna gott
fæst á Ýsufirði.
Feyjurísið firna gott
fæst á Ýsufirði.
Í hillu vísast held á brott
ef heilladísin yrði.
Engin merking er mér frá
aðeins verkin snauðu.
Engin merking er mér frá
aðeins verkin snauðu
Vættu kverk og vizku þá
með víni sterku rauðu.
Fengi skvísa´ er þvær minn þvott
ÞAÐ á VÍSA' ef spyrði??
Fengi skvísa´ er þvær minn þvott
ÞAÐ á VÍSA' ef spyrði??
Yfirlýsing: Ósköp gott
– ógnarprísa virði.
En reikning greiða víst ei vann
valdi leiðir flótta.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
En reikning greiða víst ei vann
valdi leiðir flótta.
Þóttist veiða víxla hann,
vakti reiði' og ótta.
Nú skal syngj'um næstu jól,
ná þau hingað líka..
Nú skal syngj'um næstu jól,
ná þau hingað líka.
Klukkur hringja klerk í stól,
konur pyngjum flíka.
Jólafárið – ferlegt böl,
finn ég hárið grána.
Jólafárið – ferlegt böl,
finn ég hárið grána.
Á ég skárri við því völ
með viskítárið skána.
Dagar líða, ljósið fer
lítil blíða sést hér.
Dagar líða, ljósið fer
lítil blíða sést hér.
Ætl'að skríða í bólið ber,
brjarnarhýðið best er.
hmmmm – vafamál hvort þetta gangi, sést hér/best er?
Sofa vil uns vorsól rís
vittu til – sisvona.
[Fín lausn, nema hvað að best er býr til ofstuðlun... verst er, hefði verið betra... Skabbi]