Til voru FRÆ sem puddurnar mínar átu
en djöfull er fóðurbætirinn orðinn lélegur í dag
Kargur lyktar svo illa að hann fær ekki einu sinni vinnu í loðnubræðslu.
Fræ er appelsínugulur! Hvað á það að þýða? Líklegast er að hæstvirtum Enter hefur sennilega ekki fundist hann verðugur að fá sæmilegan lit.
Andþór er hinn eini sanni gapuxi Baggalútíu.
Huxi er jafn áhugaverður og myglað rúgbrauð.
Sundlaugur er furðulegur karakter sem mælir kosti og gæði félga sinni í sundtökum.
Feministi er fúllynd freðýsa sem getur fengið glaðværasta félagsskap til líta út eins líkvaka.
Sundlaugur Vatne er þurrkuð svínafita í netasokkabuxum.
Aldrei dytti mér í hug að tjá mig næstur á eftir Jarma í þræðinum ,,Segðu eitthvað fallegt".
Golíat er hryssinglegur og hrokafullur dóni sem aldrei missir af tækifæri til þess að upphefja sjálfan sig á kostnað annara.
Sundlaugur er ósyndur eins og allir Ýsfirðingar sem hann hefur kennt.
Hakuchi hefur séð fimm sinnum fleiri þætti af Gilmore girls en ég.
Regína getur bara ekki hamið sig á þessum þræði, heldur þarf alltaf að vera svo andstyggileg að flest allir póar hafa farið að skæla undan henni.
Upprifinn er ekki nærri því ens æstur og þegar hann var með gamla hattinn .
Metalmamma er sóðaleg brussa sem skilur eftir sig slóð af vandamálum hvar sem hún fer.