Kæra vina eða vinur ég hef séð þig hér öðru hvoru . þú ert að verða þriggja ára enn ert ekki farinn að tala enþá er ekki tími til kominn að taka blablablaðið frá munninum ?
Fyrirgefu vinur hvað ég hef lítið tjáð mig hér. Mér finnst þú vera skemmtilegur náungi en það er ekki þar með sagt að ég sé skemmtileg þótt ég fylgist með ykkur.
Kæra Vigdís hér eru allir skemtilegir . Ef maður bara vill kíkja inn um gluggan og ekki leika með hinum krökkonum þarf maður ekki að skrá sig inn mér þætti þó gaman ef þú og hinir anonymu kæmu fram í dagsljósið
Ég tek undir orð Gísla. Ekki hika við að taka þátt. Ef það er hins vegar einlægur vilji ykkar óvirku að taka ekki þátt, þá ber að virða það. Dollý er til dæmis með elstu gestum en hefur ekki sagt aukatekið orð, svo ég viti.
Kæri Gísli. Ég hef bara verið skömmuð fyrir það litla sem ég hef skrifað hér. Kannski er ég bara ekki velkomin hér.
Vigdís, svo að það sé allveg ljóst að þá er blablabla ekki þú heldur er blablabla svona einhverskonar laumupúki sem sést hérna annað slagið en skrifar nánast ekkert. Vertu bara velkomin Vigdís!
Kæri Gísli. Ég hef bara verið skömmuð fyrir það litla sem ég hef skrifað hér. Kannski er ég bara ekki velkomin hér.
Svona svona, lattu nú ekki svona.klappar vinalega á öxlina á Viggu
Gæti hugsast að Blablabla sé færasti laumupúkinn hérna ? Það hreinlega finnur enginn öll þau innlegg sem hann ritar hér í hvert skipti sem hann mætir.
Klórar sér lengí kollinum og reynir að átta sig
Ég hef líka verið skammaður fyrir það sem ég hef skrifað hér. Dettur ekki í hug að hætta.
Ég bara man ekki hvort að ég hef verið skammaður fyrir skrifin hér, og hafi það gerst er alveg óvíst að ég hafi skrifað það.
Kæri Gísli. Ég hef bara verið skömmuð fyrir það litla sem ég hef skrifað hér. Kannski er ég bara ekki velkomin hér.
Elsku vina ég fór yfir öll innlegginn þín þrjú og sá að þér var tekið mjög vel . Þegar ég álpaðist hingað á lútinn fyrir tæpum þrjemur árum þá var ég beðin um að fara til andskotans eða eithvað enþá lengra ´það kemur fyrir öðruhvoru að ég sé beðin umm að fara sömu leið ennþann dag í dag enn það venst. Kæra Vigdís vertu kærlega velkominn
Ég bara man ekki hvort að ég hef verið skammaður fyrir skrifin hér, og hafi það gerst er alveg óvíst að ég hafi skrifað það.
Að þú skulir dirfast að skrifa svona eindemis ekkisens vitleysu, síprumpandi beljuhirðirinn þinn.
Slær hattinn af Texa
Hana væni, nú er búið að skamma þig fyrir skrif þín.