Réttar stuðlareglurnar
respekterum, vinir
Enginn mun þá afleitar
yrkja verr en hinir.
Skrýtið er hve skammt er til
skreyttrar jólatíðar.
Þakka ábendinguna. Natan
Réttar stuðlareglurnar
respekterun vinir.
Í stressi ég naga neglurnar
nöldra eins og hinir.
Föngulegur áðan flaug
fugl ,hér út á nesið.
Of seinn
Skrýtið er hve skammt er til
skreyttrar jólatíðar.
Svona af gömlum vana vil
væli um það síðar.
Læt fyrripart standa.
Skrýtið er hve skammt er til
skreyttrar jólatíðar.
Engan veginn ég það dyl;
þá eru buxur víðar.
Kerti eitt sinn, einnig spil
ánægð gerðu börnin.
Var þetta ekki allt í OK hjá Lappsaranum? [Nei... það var of langt á milli stuðla... Skabbi]
Föngulegur áðan flaug
fugl, hér út á nesið.
Má ég kynna: dauðan draug
daunillan um fésið.
Ég er toppur hress og hýr
hver vill vera botninn minn?
Ég er toppur hress og hýr
hver vill verða botninn minn.
Lappi kátur ,fagur fýr
friðar engill verður þinn.
d
Kerti eitt sinn engin spil
ánægð gerðu börnin,
Líka þurftu að taka til
og tóm var stundum görnin.
Drynur hátt í dömunni
dansin óðan stígur,
Hjálp!
Drynur hátt í dömunni;
dansinn óðan stígur.
Tangósporin tvö kunni,
transinn rís & hnígur.
----------------------------
Tígulegur tangódans
tryllir hold & anda
Tígulegur tangódans
tryllir hold & anda.
Alveg sama andskotans
ástandið að vanda.
Flæktum löppum fimlega
falla niður halir.
Of seinn...
Tígulegur tangódans
tryllir hold & anda
Ég skelli því í glas með glans
gambra eða landa.
SKÁL! Hér allir skulu greitt,
skála'í botn í hvelli.
Skabbi Vin,sagðist hafa verið of seinn.
Flæktum löppum fimlega
falla niður halir..
Göngumóðir Tobbu, trega [ Hér var athugasemd vegna rangstuðlunar, sem á ekki lengur við ] - z n ó j -
Tæge og aðrir kvalir. o
. Er þettað skárra,. Znó? kveðja . Lappi
[ Svarið verður að vera já & nei. Eftir breytingu standa stuðlar á réttum stað í þriðju línu, en nú er hún reyndar orðin óþarflega löng miðað við fyrstu línu. Vísan er sumsé nokkurnveginn rétt kveðin, en hrynjandin er ekki uppá marga fiska. ] - z n ó j -
Veggjalús á baki ber,
bjöllu eina stóra.
Veggjalus á baki ber,
bjöllu eina stóra.
Blessunin hún mætti mér,
en matti ekki slóra.
Lúsar grei í góðum gír [ OFSTUÐLAÐ ] - z n ó j -
gerir engum skaða
Lúsr hró í góðum gír
gerir engum skaða.
Hún er aumur fannta fír
fjandan þarf að baða.
Drynur mjög í haughúsi
hætt´að þróinn springi.
Jahérnahér. Dæsir
Veggjalús á baki ber,
bjöllu eina stóra.
Veggjalús á baki ber
bjöllu eina stóra,
ákavíti, engifer,
& elefantsins bjóra.
- - -
Flæktum löppum fimlega
falla niður halir.
Flæktum löppum fimlega
falla niður halir.
Teljast vart til trimmvega
Tindafjalladalir.
----------------------------
Íþrótt nokkra iðka ég
oft & tíðum
Elsku karlinn Klappar z n ó j á bakið
Íþrótt nokkra iðka ég
oft & tíðum.
Liðamótin liðka ég
létt á skíðum.
Oftsinnis með elegans
inn á gólfið dansa
Oftsinnis með elegans
inn á gólfið dansa.
Æði um með Bínu Brands
brjálaður ei stansa.
Verið bless og heldur hress
hægri snú að vana.
Verið bless og heldur hress
hægri snú að vana
Amma gamla alltaf hress
ávallt var með kana
Öldin önnur er í dag
önug er ég núna
[Obbossí... ofstuðlunin er helst til mikil... Skabbi]
Aldrei má maður ekki neitt
[
[/i][/b][i]
b]
[Uss... þetta gengur ekki... þú botnar ofstuðlaðan fyrripart og að auki breytirðu textanum þannig að hann er meira ofstuðlaður... Skabbi]
Verið bless og heldur hress
hægri snú að vana.
Vertu hress og vertu bless
verði þér að bana.
Illt ég meina ekkert þér
elsku karlinn besti.