Þetta á eftir að verða meira geðsjúklingahælið.
Fer í fortíðarupprifjun
Ætlli vjer hefðum lent hjer er vjer rituðum þessi orð ef það hefði verið búið að stofna þessa stofnun ? Hrökklast afturábak og hrasar við
Hefur þetta eitthvað að gera með fyrirspurn mína til ritstjórnar, þar sem ég fékk það staðfest að djöfullegt samsæri um að taka mig úr umferð er í gangi?
Hrökklast aftur á bak og hrasar um vínrauðan krókódíl.
Sækir nýstraujaða spennitreyju Hvað endemis vitleysa er þetta. Það er enginn að taka þig úr umferð. Réttir Vímusi spennitreyjuna og segir í föðurlegum umvöndunartón Hana, farðu nú í þessa skyrtu vinurinn. Þú ert að fara í afmæli og verður auðvitað að vera fínn og strokinn.
Leggur inn starfsumsókn
Leggur inn starfsumsókn
Það vantar t.d. forstjóra. Þó vjer glaðir tækjum það að oss gegnum vjer svo mörgum embættum að eigi er þessu á það bætandi að svo stöddu.
Leggur líka inn starfsumsókn
Ég vil prufa að vera læknir.
Laumar skjalatösku með fullt af böggum og lyklum af fulllestuðum 40 tonna plútóníumbíl inn á borð forseta
Leggst á flótta Ég verð ekki vistmaður hér ef þessi eiturbyrlari verður látinn malla oní mig.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Mig langar sækja um. Ég hef mikinn áhuga á að uppræta þessa raunheimaskynvillu og held ég að eitt af bestu tólunum til þess sé heilaþvottur. Ég myndi glöð taka að mér að forstýra heilaþvottahúsi innan stofnunarinnar.
Ég sæki um embætti yfirkokks (þar sem aðalkokkur Baggalútíu ætlar að sinna læknisskyldum). Enda ætti það að vera lýðum ljóst að til að uppræta raunheimavilluna gengur ekki að láta ofan í sjúklingana neitt annað en ákavíti, kóbalt og kakó.
Mallar sérlega kóbaltbætt kakóvíti
Skráir Offara sem formlegan stofnsjúkling þar sem Hexía mun sjá um matinn en ekki Hvæsi
Sýpur hveljur og sér fyrir sér að kakósjúklingurinn Offari muni alls ekki vilja læknast
Býr til nýjan lista, LISTI YFIR ÓVINI SÍKISINS