Skiptir sér af
Skiptir sjer líka af, aðallega svo upphafsinnleggið verði ekki eins og út úr kú
verður afskiptur
Það er a.m.k. skárra en að verða tvískiptur eins og þráðurinn.
Kemur með klæðskipting og hendir í Þarfa og Ívar
Velkomin Þver... Æj, er búinn að gleyma restinni af nafninu.
Snarar Þvergirðingarstaur
Slítur allt úr samhengi
Glæsilegt, mig vantar einmitt almennilegt lið í girðingavinnu. Bíðum þá aðeins með tjöruna og fiðrið . . .
Ji-i-í-ha !
Velkominn herra Þvergirðingur. Láttu bara ekki krakkaskrílinn bola þér í burtu þetta er ungt og leikur sér.
Ég er eins og nafnið gefur til kynna þver og þrjóskur, gamaldags í hugsun en að öðru leit skítsæmilegur karakter.
Það mætti ætla af orðum þínum að þvermóðska, þrjóska og gamaldags hugsun séu ekki mannkostir. Þessir kostir ættu að prýða sem flesta.
Sem betur fer er fólk ekki sammála um hvað telst vera mannkostir, Herra Kargur en ég get alveg verið þér sammála um að þetta eru mannkostir sem ég kann að meta, ásamt öðrum sem ég nenni nú ekki að telja upp hér.
(Ég setti nú mynd hérna inn til að losna við þennann draug sem fylgir mér, tekur það langan tíma að komast í gegn?)
Ég held að þú þurfir að senda inn 50 innlegg áður en þeir þora að birta mynd af þér hér.
Ég verð þá bara að sætta mig við að reika hér um í líki draugs.