Vjer biðjumst afsökunar á að trufla lítillega umræðuna hjer en viljum einungis vekja athygli á að allir eru velkomnir í Hreintrúarflokkinn:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=4091
Flöt jörð, slétt föt, hrein trú !
Gott er til þess að vita að ég get skipt yfir í Hreintrúarflokkinn þegar mig fýsir. Hins vegar vil ég tilkynna það formlega að til slíks mun aldrei koma. Aldrei nokkrun tímann. Þó svo að ég verði einn eftir í Kommúnistaflokknum, þá mun ég sitja þar sem fastast uns yfir lýkur.
En ef Hreintrúarflokkurinn kaupir Kommúnistaflokkinn ? Athugar fjárhirslur Hreintrúarflokksins
Hver getur selt Kommúnistaflokkinn.
það er þá alltaf hægt að stofna nýjan fyrir ágóðann.
Kaupa Kommúnistaflokkin!
Verður enn rauðari í framan en venjulega
Þetta er ein mesta afbökun á veruleikanum í þágu peningavaldsins sem ég hef nokkurn tímann heyrt! Hvurslags þvættingur er það eiginlega að kaupa heilan stjórnmálaflokk?
Hvað sem líður hugmyndafræðilegum fýsileika slíks gjörnings, þá er Flokkurinn hvort eð er ekki til sölu.
Hver getur selt Kommúnistaflokkinn.
það er þá alltaf hægt að stofna nýjan fyrir ágóðann.
Þetta er reyndar stórgóð hugmynd.
Nýr saman höndunum
Hvað býðurðu, Vladimir?
Uhh... hjerna Verður örlítið vandræðalegur, fyrst þarf að ræða hvað felst í kaupunum, þ.e. að fjelagar flokksins fylgi með, að þeim verði óheimilt að stofna aðra flokka hvaða nafni sem þeim nefnast, að bannað verði að segja sig úr Hreintrúarflokknum fyrr en eftir ákveðinn tíma o.m.fl.
Klórar sér í höfðinu
Þjóðverji sem hyllir dönsku drottninguna? Ja sei sei ... þú saknar kannski þýsku pótentátanna svona hrikalega?
Hmm. Það er nokkuð til í þessu hjá þér.
Hengi tvíhöfða ríkisörninn upp á vegg.
Das heilige römische Reich deutscher Nation lengi lifi!
(Þó það hafi liðið undir lok 1806...)
Kaupa Kommúnistaflokkin!
Verður enn rauðari í framan en venjulega
Þetta er ein mesta afbökun á veruleikanum í þágu peningavaldsins sem ég hef nokkurn tímann heyrt! Hvurslags þvættingur er það eiginlega að kaupa heilan stjórnmálaflokk?
Hvað sem líður hugmyndafræðilegum fýsileika slíks gjörnings, þá er Flokkurinn hvort eð er ekki til sölu.
Hvaða þröngsýni er þetta. Sérðu ekki samlegðaráhrifin.
Sýnir línurit sem vísar í hánorður
Miðað við gefnar forsendur um fjármögnun með skuldabréfum og hlutafjárútboði má gera ráð fyrir amk. 30% aukningu í arðsemi sameinaðs flokks. Þú getur vart hafnað svo góðu boði.
Sameinaður flokkur segirðu ...
Klórar sér á hökunni
Hvaða flokki myndum við þá sameinast, ef mér leyfist að spyrja?
Er ekki hægt að leggja flokkinn niður? Er þetta ekki löngu úrelt fyrirbæri?
Er ekki meira í stíl vinstri flokkana að klofna?Getur ekki helmingur flokksmanna einfaldlega gengið í hreintúarflokkinn?Þeir geta alltaf borið við óásættanlegum ágreiningi eða eitthvað svoleiðis pípp
Ég hér með vill leggja inn bónorð um að fá félagsaðild æi kommúnistaflokkinn!
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Í öðrum þræði var auglýst eftir staðsetningu Kommúnistaflokks Baggalútíu. Það tilkynnist hjer með opinberlega að hjer er hann fundinn Undirbýr að rukka flokkinn um fundarlaun í samræmi við eðlilegt markaðsvirði.
Það yrðu þá ekki há fundarlaun.
Miðast það við markaðsvirði fundarlauna eða kommúnistaflokka?
Borgar forsetanum á fundarlaun undir borðiðteldu bara þegar þú ert kominn út,þú verður ekki fyrir vonbrigðum.Laumar RÚV í vasa Vladimirs og Gefur Stjóra langt nef.