Sælt veri fólkið! Svo virðist vera sem vefur þessi fái að njóta nærveru ofurstans í nánustu framtíð. Ofurstinn hefur undanfarinn hálfa áratug lesið fréttasíður baggalúts af miklum móð. Það er því mikil hneisa að undirritaður hafi ekki heiðrað spjall þetta með nærveru sinni fyrr. Úr þessu skal nú bætt...
Velkominn Ofursti. xT Þú lofar góðu með heiðarleika og hreinskilni.
Velkominn. (Svo verður þú ennþá meira velkominn þegar þú hefur farið í gegn um innflytjendahliðið.) Ljómar upp
Velkominn kæri ofursti. Láttu sem þú ert heima hjá skapofsafullum grískum guðum með hreinlætisáráttu.