Skál félagar!
основывает вверх по!
Ég var bara að mæta....
Auðvitað er ég mættur !! Hress og kátur, eins og slátur
Ég mætti nú í fyrra dag, 2.sept en var ekki búin að uppgötva að hægt væri að skrá sig hér Glottir eins og fífl
Mætt á svæðið.
Mættur, er ekki nauðsynlegt að stimpla sig inn svo launatékkarnir haldi áfram að berast reglulega frá Samsteypunni.
Mœtt á nýju. Blessuð öll.
Jæja þá má stóla á mig aftur.skráir sig inn
Hleður stólum á Dulu
Hvaða helvítis vitleysa er þetta! Löngu búið að opna og enginn hringdi í mig!
Hvar er Leibbi Djass? Þið hafið kannski ekki hringt í hann heldur, skepnurnar ykkar.
En jæja, djöfull er fínt að búllan sé opin. Nú getur maður fengið sér í aðra tánna með almennilegu fólki!
Skál lömbin mín.
Hvaða helvítis vitleysa er þetta! Löngu búið að opna og enginn hringdi í mig!
Kannski þorir enginn að nota Gestapósíma af ótta við að þeir sjeu allir hleraðir í þeim tilgangi að fylgjast með mögulegri starfsemi óvina ríkisins Starir þegjandi út í loftið.
Skál lömbin mín.
Skál sjálfur, gamli hrúturin þinn. xT
Sæll Jarmi. Ertu ekki bara í ljúfu skapi þetta árið?
Vona að þú slakir bara vel á og verðir glaður.
Trillar og hlær
-
Hjálp! Ég ritaði mig inn eftir nokkuð langt frí og veit ekki hvar ég á að byrja. 27 síður af "Hvað er nýtt" - reyndar vantar eitthvað þar inn í vegna þess að ég get ekki skoðað allar síðurnar. Á síðu tólf sá ég hins vegar umræður frá því 2004 en þá var ég ekki svo mikið sem komin hingað. Ætli Hvað er nýtt síðan vilji láta mig lesa þetta allt saman? Núna? Hvar er best að byrja? Snöktir og fær sér sterkan kaffibolla til að róa taugarnar
Einmitt. Það sem Helena sagði. Ég er eiginlega hálf villt hérna, þetta er miklu stærra en það var fyrir lokun Þefar varlega út í nýju hornin