Konuhljóðkútur
Og til að koma á jafnrétti karlmanna tuðstoppari.
Ok, sanngjarnt.
En sveppaskrælari? Eða kartöflunuddtæki?
Ég á tíu ára gamlan Panasonic ferðageislaspilara sem ég nota enn í ferðalögum. Hins vegar verð ég að viðurkenna að ég er þessa dagana að manna mig upp í að kaupa Archos alltmúlígtæki.
Þetta snilldarapparat spilar alla tónlist, er með skjá og spilar bíómyndir á stafrænu formi, tekur upp sé það tengt við sjónvarp og er nú komið með wi fi tengingu. Ef þetta er ekki hið fullkomna tæki til að tortíma tímanum á leiðinlegum flugferðum þá veit ég ekki hvað.
Keypti fyrstu kynslóðar tæki, sparaði það svo mikið að nú er það úrelt og spilar ekki nýjustu videoformötin. Brestur í óstöðvandi grát Að öðru leyti er þetta snilldar græja, 40 GB harður diskur sem komst í vasann var snilldarappatrat á síðustu öld. Ljómar upp Spurning hvort kallinn fær sér nýtt.
Hvað tímaþjóf í flugvél varðar þá gengur mér best að drepa tímann í leiðinlegri flugvél með SuDoKu þrautum.
Ég vil hinsvegar fá sjálfvirkan minnismiðaskrifara fyrst.
Mig vantar reipi sem kemur aftur til eigandans ef manni mistekst að snara það sem á að snara. Svona búmerang-reipi. Ekki misskilja mig samt, mér mistekst aldrei. Ég er bara að hugsa um hina kúrekana. Snarar B.Ewing og Hakuchi saman í snöru
Úps... þetta voru kannski mistök.
Hvað segið þið um færanlega varðelda?
Hvað segirðu um að fá mig í staðinn?
Mig hefur alltaf langað í harmonikkuyddara
Augabrúnahitara vanta mig oft þegar kalt er í veðri.
Mig vantar handprjónavélmenni.
Mig vantar handprjónavélmenni.
Mig líka, láttu mig endilega vita ef þú kemst yfir gamlan lager af þeim.
Laumumynmdavél, svo ég geti látið taka laumulega mynd af mér.
Ég hef lagt til að uppfinning mín, gúrkugleraugun verði sett á markað. Fyrir fegurðardísir sem eru á þönum og vilja nýta tímann sem fer í að hangsa með smyrsl og gúrkur á augunum geta þær einfaldlega sett gúrkusneiðar í þar til gerð gleraugu og fríkkað á meðan þær vaska upp, dekra við eiginmanninn og þvo börnin.
Bankastarfsmannastrokleður - Notist á leiðinglega þjónustufulltrúa...
Mig vantar númerbirti á dyrabjölluna svo ég viti hver er að dingla....
Mig vantar númerbirti á dyrabjölluna svo ég viti hver er að dingla....
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Tölvu sem hægt er að nota í sturtunni og er líka spegill ef maður þarf að raka sig.
Tölvubúnaður sem er tengdur við nærbuxurnar og segir manni hvenær maður á að skipta um þær.
Vélmenni sem klippir hausa af mönnum með sítt að aftan.
Konan mín hefur oft talað um skort á sjálfvirkri leggjarakvél. Sennilega einhvers konar brækur.