Hjer hefir vér botn einn smáann og bið jeg ykkar að fyrriparta hann:
hentist þá í háaloft
og hringd'í ömmu sína
Fyrripartur æði oft
er gerður til að ríma.
hentist þá í háaloft
og hringd'í ömmu sína
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
mæddi afa Microsoft
mikil gerðist pína
hentist þá í háaloft
og hringd'í ömmu sína
Landafræði lærð´ann oft
lengst í burt´ er Kína.
Hentist þá í háaloft
og hringd'í ömmu sína.
Á Margeiri litla mæddi oft
vitinu hann var að tína
hentist þá í háaloft
og hringd'í ömmu sína
Andskotann með úldinn hvoft
ærði magapína.
hentist þá í háaloft
og hringdi í ömmu sína.