Mér er sama hver ræður yfir heiminum.... svo fremi sem ég fæ að vera memm.
Glottir
Kominn aftur eftir páskafrí.
Litaspá dagsins fyrir litamerki Baggalútíu.
Rauður
Ef þú þarft að taka afstöðu til ákveðins máls þá skaltu hugsa málin vel.
Grænn
Þetta er ekki rétti dagurinn til að hafa samskipti við gagnstæða kynið.
Blár
Þú hefur átt í einhverjum smáveikindum þessa dagana. Farðu vel með þig.
Gulur
Allur þinn tími fer í að hjálpa vini þínum sem þú hefur miklar áhyggjur af.
Brúnn
Þú kemur miklu íi verk fyrri part dagsins. Ljúktu af erfiðu verkefni.
Liljubleikur
Þú gætir orðið til mikillar hjálpar hjá kunningja þínum ef þú aðeins kærir þig um.
Sterkgulur
Hugsaðu málin vel áður en þú ferð að framkvæma hlutina.
Fölur
Heimilið og fjölskyldan koma til með að taka allan þinn tíma næstu daga.
Hrifblár
Varastu að eyða um efni fram. Vertu heima í rólegheitunum í kvöld.
Rjómahvítur
Allt sem þú tekur þér fyrir hendur þessa dagana heppnast mjög vel.
Ísblár
Þér er einhver vandi á höndum en þér tekst að leysa úr því.
Litaspá þessi er ætluð til dægrastyttingar en eru ekki nákvæm vísindi
Munið að skoða Árslitaspána 2007
Grænn
Þetta er ekki rétti dagurinn til að hafa samskipti við gagnstæða kynið.
Íhugar að minnka líkur á slíkum samskiptum með því að setja til öryggis alla kvenkyns Bagglýtinga á listann yfir óvini ríkisins fram að miðnætti nk.
Ísblár
Þér er einhver vandi á höndum en þér tekst að leysa úr því.
Rétt er það - yfirdráttarþjónustan þarfnast allsherjar yfirferðar, en það er allt á réttu róli.
Það er mun betra að nýta sér undirdráttarþjónustu Blástakks. Undirdráttur er það sem koma skal. Þú lætur mig hafa alla peningana þína og ég skammta honum til baka eftir geðþótta. Þú sparar pening og ég get drukkið mig í hel á kostnað nytsamra sakleysingja.
Gulur
Allur þinn tími fer í að hjálpa vini þínum sem þú hefur miklar áhyggjur af.
Ég hef nú aðallega verið að undirbúa manndómsvígslu erfðaprinsins, hef samt engar áhyggjur af honum.
Klórar sér í höfðinu og leitar að áhyggjunum
Hef litlar áhyggjur af vinum mínum... flestir afskaplega sjálfbjarga og til lítilla vandræða... eða þá feimnir við að biðja um hjálp... hvað veit ég... Starir þegjandi út í loftið
Sterkgulur - hugsaðu málin vel áður en þú framkvæmir hlutina.
Hefði ég aðeins vitað þetta áður en ég fékk myndina mína þá hefði ég kannski sleppt því að skrá mig inn á Baggalút. Hins vegar á það enn eftir að koma í ljós hvort innskráningin var feilspor. Sjáum til
Grænn
Þetta er ekki rétti dagurinn til að hafa samskipti við gagnstæða kynið.
Gott er nú það.
Litaspá dagsins fyrir litamerki Baggalútíu.
Rauður
Þú og vinur þinn hafið sameiginlegt áhugamál og munuð þið eiga góðar stundir í kvöld.
Grænn
Þú skalt ekki gera ráð fyrir miklum skemmtunum næstu daga.
Blár
Góður andi er ríkjandi á vinnustað, þér til mikillar furðu.
Gulur
Þú hefur alltaf haft mikinn áhuga á börnum og færð að vera með þeim í dag.
Brúnn
Ef þú færð gott atvinnutilboð skaltu ekki hika við að þiggja það.
Liljubleikur
Þetta verður rólegur dagur en í kvöld skaltu gera eitthvað skemmtilegt.
Sterkgulur
Ef þú færð hrós fyrir vel unnin störf þá skaltu ekki láta það stíga þér til höfuðs.
Fölur
Skipulagshæfileikar þínir fá notið sín í dag og er það ekki í fyrsta sinn.
Hrifblár
Þú ættir að reyna að gera heimilisstörfin skemmtilegri með því að hafa þau fjölbreyttari.
Rjómahvítur
Þú færð góðar fréttr sem eiga eftir að færa þér mikla lífshamingju.
Ísblár
Það er kominn tími til að þú hristir af þér slenið og farir að gera eitthvað í málunum.
Litaspá þessi er ætluð til dægrastyttingar en eru ekki nákvæm vísindi
Munið að skoða Árslitaspána 2007
Gulur
Þú hefur alltaf haft mikinn áhuga á börnum og færð að vera með þeim í dag.
Horfir í kringum sig á vinnufélagana
Já þeir eru óttalegir krakkar, það er satt.
lítur undrandi í kringum sigHér er allt mann og barnlaust.
Grænn
Þú skalt ekki gera ráð fyrir miklum skemmtunum næstu daga.
Þarna hitti spámaðurinn naglann á höfuðið. Dæsir mæðulega og leggst aftur ofan í skólabækurnar
Litaspá dagsins fyrir litamerki Baggalútíu.
Rauður
Þetta verður einstaklega viðburðaríkur dagur hjá þér.
Grænn
Gott tækifæri er nú að koma fjárhagnum í lag og ættirðu að nota tækifærið.
Blár
Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla. Þú ættir að hafa það hugfast næstu daga.
Gulur
Líkur eru á að öll samvinna gangi vel næstu daga.
Brúnn
Þú skalt taka vel og vandlega eftir öllu sem fer fram í kringum þig í dag.
Liljubleikur
Hlustaðu líka á sjónarmið annarra því það er ekki víst að þín skoðun sé sú besta.
Sterkgulur
Ef þú ferð í stutt ferðalag með góðum kunningja þá munt þú skemmta þér vel.
Fölur
Þú skalt ekki láta smá tafir draga úr þér allan kjark.
Hrifblár
Þrátt fyrir allt þá mun athyglin beinast mest að þér í dag.
Rjómahvítur
Gefðu þér góðan tíma ef þú ert að vinna að vandasömu verkefni.
Ísblár
Þú færð skemmtilegt bréf sem mun færa þér óvæntar fréttir.
Litaspá þessi er ætluð til dægrastyttingar en eru ekki nákvæm vísindi
Munið að skoða Árslitaspána 2007
Aðeins of seinn með þessa spá. Það var um síðustu helgi sem ég fór í ferðalag með kunningja mínum til Borgarfjarðar.