Svart te frá Yunnan héraði í Kína. Yndislegt, glæsilegt, ótrúlega gott. Maður þarf ekki annað en að horfa á það til að komast í gott skap.
Kaffi sem hreysiköttur kúkaði... spes
Nei, baunirnar eru látnar ganga gegnum hreysiketti og síðan hreinsaðar og brenndar, á að ná einhverjum beiskjum úr. Ég finn svo sem engan mun.
Smirnoff vodka.
Sama og Lopi.
Kók. Kalt, svalandi kók. Og mikið andskoti passar það vel við hassið.
Já þyrstir þig Tina af hassinu. Má ekki bjóða þér eina jónu með úrvals skunki?
Ég held mig við vodka meðan byrgðir endast. Keypti 67 flöskur um mánaðarmótin og er varla hálfnaður. Skál!
Ég var nú bara að drekka Earl Grey te. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Teið er búið og því drekk ég áfram drykk sannrar karlmennsku, perusíder.
Finnur bringuhárin spretta sem aldrei fyrr
Floridana appelsínusafa.
Skellir sér í þröngar stuttbuxur og ermalausann bol
Ætlar einhver með út að skokka ?
Setur svitaband í stíl við stuttbuxurnar á ennið
Meira vodka.
Páskabjórinn. Víking sterkur, eiginlega allt of sterkur svona fyrir svefnin.
hvað á ég að þurfa að nefna þetta á mörgum þráðum að ég er að drekka bjór!!!
Er þetta lið svona þroskaheft? Vodka
Ó! Erum við að djamma í kvöld?
Ég sem drekk bara vont vatn með verra þykkni.