Withing Temptation - Restless
Elliott Smith - Easy way out.
Renna Very 'eavy Very 'umble með Uriah Heep í gegn.
Ballad of Hollis Brown - Bob Dylan
Allt of langt um liðið frá því að ég hef hlustað á gamla dótið hans Dylan.
Snillinginn Mark Steel ræða um frönsku byltinguna. En hvað þessi maður er mikil snilld.
Hægt er að nálgast þetta hér : http://mp3.lpi.org.uk/resistancemp/history.htm
Every Little Thing She Does Is Magic - The Police
Unholy Warcry með ítölsku rokksveitinni Rhapsody... eða Rhapsody of Fire eins og þeir heita eftir að þeir þurftu að breyta nafninu í fyrra.
Cowboy Junkies - The Trinity Sessions.
Falleg plata. Mér líður alltaf vel ef ég hlusta á hana.
Ég er að hlusta á Hands in the Dark með Chromatics. Fínt einfalt Italo-disco sem ég fann á Internetunum.
Í augnablikinu hlusta ég á Folkearth flytja lagið Horned Trolls and Mystical Folk.
Billie Holiday syngja Let´s call the whole thing off. Ég hef alltaf verið heilluð af þessu lagi enda skondið og skemmtilegt.
Regina Spector syngja lagið Fidelity. Alveg er hún yndisleg söngkona.
Er hún skyld hinum kolóða morðingja og tónlistarsnillingi Phil Spector?
Hún hljómar ekki eins og hún sé morðóð svo hún getur varla verið skyld honum.
Erum við annars örugg, er hann í fangelsi?
Nei. Hann er laus enda er réttað yfir honum í Kaliforníu þar sem frægt fólk má myrða að vild. Mál hans liggur fyrir dómi og mun gera það næstu árin ef ofborgaðir lögfræðingar Spectors (brjálaða morðingjans þ.e.) fá sínu framgengt. Þetta er sami maður og framleiddi eina plötu með Leonard Cohen (dauði kvennamans - vanmetin plata reyndar) og umturnaði plötunni hans í eitthvert furðufyrirbæri (m.v. Cohentónlist). Frægt er t.d. þegar hann ógnaði Cohen með byssu í hljóðverinu.
Hann myrti hina fögru og fölnuðu B-myndaleikkonu Lönu Clarkson sem gat sér góðs orðs meðal sverða- og sandalamyndaáhugamanna í meistaraverkum á borð við Deathstalker og The Barbarian Queen. Hennar verður saknað.
Takk kærlega fyrir þetta.
Aldrei myndi hún Regina mín beina byssu að Cohen. Krossar fingur
Skemtileg tilviljun, er einmitt að hlusta á Dancing Queen með ABBA. En Lana var mikil listakona, það er allveg rétt.