Kútinn ég upp legg á lögg
losa svo um tappann .
Fæ mér sopa gambra glögg
gleði fer um kappann.
Kappinn eflaust átti við
annað var að meina
Sá frá Lappa ljóðasmið
lákveðu hér eina.
Kærar Þakkir Offi minn.
Eina þekki bauga brá
bráðfallega kvinnu.
Æsist gamli þöngull þá
þráir,hana í vinnu.
Vinnan mín er vond og fúl,
að velta sements pokum.
Alla daga eilíft púl
uns ég dey að lokum.
Lokum dyrum höfum hljótt
hægan umgang lofa.
brátt er kominn niðdymm nótt
næði , fer að sofa.
sofa vil í sautján ár
svefninn hugann róar
en voða mikið verð ég sár
ef vífið mér þá fróar
(þar sem ég vakna við það)
Fróa þú þér þöngulhaus
þín er engin fraukan
um heyri í þér eilíft raus
þá einu mær er strauk'ann
en hann er lengri en tommur tvær
og tryllir meyjar ungar
átta tugi ærði í gær
urðu flestar þungar
En þyngri er hann þrefalt minn
þrútinn mun og breiður
að fá og þetta flykki inn
flestum þykir heiður.
Fróar Ísak drauma drós
dæsir karlinn glaður.
Þarna kemur líka í ljós
lúmskur ert og graður.
(Lappi stekkur hér yfir nokkrar vísur.)
heiður mun það varla vinur
visinn beytil þinn að strjúka
yrði sjaldnar alveg linur
ef þú kynnir hann að brúka
Brúkar lúku löngum víst
á láfum mun ei örla
blinda af syndum sjaldan hlýst
því sér hann Isak gjörla
gjörla förlar flónsins hér
fyrir litlu minni
fróa svönnum, sjaldnar mér
(síðast frúnni þinni)
Þinn frú ég þarf að sinna
þegar henni vantar drátt
Jafnvel þó að mitt sé minna
missir þú það alltof brátt.
Klám!
Brátt mun skírast skjalið
skömmin læt hér hvína.
vitlaus gögnin galið
gæfan bætir sína.
Sína gæfu getur bætt
getur bætt sitt mannorð
Lappi kemur ljóð hér mætt
leti er hér bannorð.
Ekki er úr vegi að fagna hinum ágæta félaga er kallar sig Seinheppin, & lætur nú meir tilsíntaka en framtilþessa.
Ennfremur vil ég vil lýsa yfir ánægju með fína & skemmtilega takta hans & Isaks hér að ofan.
Bannorð eru bagaleg,
en býsna mörg þó finnast;
einkanlega agaleg
er ástmey þú vilt kynnast.
Kynnst hef mörgum mönnum hér
misjöfn er sú flóra
Dáleidd er hér mær að mér
mær sem kann að klóra.
Klórar sér í kunntunni
kveinkar sér á meðan.
Unnur í svörtu svuntunni
svæsin þráir reðan.