Hvernig í bandbrjáluðum bavíönum stendur eiginlega á því að Baggalútur fær einungis þrjár tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna en eigi tilnefningar í öllum þeim flokkum þar sem þeir eru gjaldgengir ? Þetta er hneyksli. Reginhneyksli ! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer. Bætir við listann yfir óvini ríkisins
Þetta er ekki einungis hneyksli, heldur líka samsæri. Það er ekki hægt að álykta annað, þar sem undir öllum eðlilegum kringumstæðum hefði þetta verið eins og þú lýstir.
Legg ég til að skipuð verði sérstök nefnd til að komast að hinu sanna í málinu.
Baggalútur fékk enga tilnefningu, Baggalútur fékk einfaldlega öll verðlaun íþrótta og kvennamálaráðuneytis Baggalútíú, eina ferðina enn, öllum á óvart.
Þetta þýðir einungis eitt! Bylting skal verða innan sólarhrings! Blótar herfilega og rífur hár sitt
En eitt atriðið á lista yfir glæpi gegn mannkyni sem Einar Þór Bárðarsson hefur framið...
Hvaða túnfisketandi tunglbúar komu eiginlega í veg fyrir að Baggalútur inni öll verðlaunin er þeir voru tilnefndir til ?! Þetta er hneyksli. Reginhneyksli segjum vjer ! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sjer