Ekki segja okkur þetta! Segðu Alfreð það!
Ég hringi í hann med det samme!
Er ekki númerið hjá honum +3545812345 ?
-
Jú jú. Segjum það bara!
Mér finnst að Ísland sé komið nógu langt. 8. sætið er mjög góður árangur.
Handbolti hvað er það, eitthvað ofaná brauð?
Betri er einn bolti í hendi en tveir í skógi.
Röltir spekingslega um
Það má alltaf nota Júgga trikkið á þennan Boldsen finnst það hvort eð er hafa verið stórkostlega vannýtt á þessu móti.
Já spurning hversu harður hann er þegar það er kippt í hælana á honum í stökki, einn sem varð fyrir þessu slefar bara í dag.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að skv. upplýsingum frá leyniþjónustu forsetaembættis Baggalútíu stálu óvinir ríkisins öllum miðunum á næsta leik íslenska liðsins.
Smá fréttir frá dönsku herbúðunum.
Þó er gott að taka eftir að þeir byggja sitt lið allt upp í kringum einn mann, Boldsen. Takist okkur að fjarlægja hann úr spilinu þá ættum við að standa uppi sem sigurvegarar. Einnig er mikilvægt að sýna breidd og fjölbreytileika, koma þeim svolítið á óvart með nýjum kerfum.
Mín spá er 26-23 fyrir Íslandi.
-
Við útidyrahurðina hjá þér hefur verið lagður pakki. Í honum er flugmiði til Þýskalands, falsað vegabréf, leiðbeiningar um hvar danska landsliðið heldur sig, sérstaklega hönnuð hnéskeljasleggja og mynd af Boldsen.
Við treystum á þig.
Slær Limbra á bakið
Stekkur hæð sína af tilhlökkun Afhýddu pödduna! Færir Limra bananaknippi til æfinga.
Heja Sverige ! Friskt humör . Det är det som susen gör. Heja heja heja !
Ha? Er leikur? Hvenær?
Eftir klukkutíma fíflið þitt. Veistu ekki neitt?!?
Klukkutími í leik!
Nú þjöppum við okkur saman og opnum bjóra! Ekki danska samt!!!
ÁFRAM ÍSLAND!
Klukkutími segirðu.
Undirbýr hljómflutningstækin, stillir hávaðann á óbærileg desibel, tekur fram dauðarokkið og heyrnartólin
Svona, nú ætti ég að vera vel varin.
Jæja, við komum betur út úr þjóðsöngnum. Þetta byrjar vel!