HVERJIR ERU BESTIR !!!???
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Við erum bláir, við erum hvítir, við erum rauðir og langbestir! Lalalalala-lalalalala-lalalalala-lalalala!Stekkur hæð sína
Ahh, það væri ekki stórt handboltamót án þess að Íslendingar gerðu sér heimskulegar vonir og uppblásnar væntingar um að geta eitthvað...
Skríður í skjól fyrir handsprengjuregninu sem er yfirvofandi...
Áfram Ísland!
Jafnvel þó við getum ekki neitt!
♪♪♪
Strákar, tala saman í vörninni,
tefja ekki í sókninni,
taka á öllu og slappa aldrei af.
Djarfir brjótast inn úr hornunum,
ógna þeim með upphlaupum,
opna línur og skjóta þá í kaf.
Áfram Ísland, áfram Ísland,
allir sem einn þó að vonin sé veik.
Áfram Ísland, áfram Ísland,
ákveðnir sigrum við í þessum leik...
♪♪♪
Hleypur inn á landsliðstreyjunni einni fata ÁFRAM ÍSLAND! Brunar út aftur
Ég hef fulla trú á að íslenska landsliðið rústi þessu móti... allt annað verða gríðarleg vonbrigði... ég fer á allsvakalegt fyllerí ef við vinnum ekki úrslitaleikinn með a.m.k. tveimur mörkum...
Þann dag sem Ísland verður heimsmeistari í eitthverju er sá dagur sem eitthver seldi köslka sál sína.
„Going once, going twice...“ Selt herramanninum með hornin, halann og klaufana.
Hvað fengu þeir marga frakka? Er svona kalt í Þýskalandi?
Voru þetta ekki stuttir frakkar?
„Going once, going twice...“ Selt herramanninum með hornin, halann og klaufana.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Þann dag sem Ísland verður heimsmeistari í eitthverju er sá dagur sem eitthver seldi kölska sál sína.
Þá hlýtur Dabbi Krull að vera á hraðri leið niður, eftir Bermúdaskálina hér um árið.......
Þetta verður hörku mót. Strákarnir eru allir að koma til. Með næst eða þriðja flestu mörkin skoruð á mótinu og svona.
Nú er verið að endursýna leikinn við Frakka. Hann verður á hverjum degi klukkan 3 síðdegis héðan í frá og fram að jólum. Ljómar upp