Þokkinn skín af þér Salka, þú ert þokkaleg, ég er óþokkalegur.
Súrir hrútspungar hafa einhvern innri þokka. [Gefur frá sér vellíðunarstunu
Eitt sinn var ég vetrarmaður norður í landi. Á því heimili var hákarl oft á borðum. Eitt sinn er við bóndinn sátum að drykkju langaði okkur í hákarl, en birgðirnar voru þá í frysti. Bóndinn tók þá til ráðs að skella vænu stykki í örbylgjuna. Eitthvað höfum við verið annars hugar og steingleymdum hákarlinum þar til lyktin af kraumandi stykkinu barst okkur inn í stofu. Húsfreyjan varð voða reið yfir þessu, sérstaklega þar sem allt sem var sett í örbylgjuna næsta mánuðinn lyktaði eins og hákarl.xT
Frábært! Popp með hákarlsbragði! Það myndi slá í gegn! Stekkur hæð sína
Já ef það er afsökun til að teiga brennivínið þá er poppið með hákarlsbragðinu kærkomin viðbót við þorrabakkann.
En hvað með hjallaþurkaða þorskhausa?Klórar sér í höfðinu
Æi nei. Ég borða ekki þorramat.
Harðfiskurinn, hangikjetið og flatbrauðið er það eina sem nær inn fyrir mínar varir. Restin er ekki matur að mínu viti.
Nagar harðfisk með sméri
Voðalega hefur Dýrmundur orðið kvenlegt yfirbragð. Ætli megi bjóða henn-onum vindil í tilefni féssins?
Ég rakaði mig og hætti í vindlunum. Hvað getur Dýrmundur gert að því þó hann sé sætur?
Þú er alltént falleg(ur) á litinn.
Ljómar upp
Þú segir nokkuð. Liturinn er háður birtunni.
Þú er alltént falleg(ur) á litinn.
Ljómar upp
Uss, skiptir um lit. Tek þetta aftur.