Já, þorramaturinn er stórkostleg fæða. Hákarlinn, sem dæmi er það besta sem hægt er að fá í langpíndan, bakflæðandi, sýrustigs sveiflandi, jólaofáts- og áfengisóreglu vömbina á mér. Síðan er þetta allt svo helvíti gott!!!!! Og nú er bara vika til þorra!!! Stefni á amk þrjú þorrablót í ár. Andlegir yfirburðir okkar Austfirðinga koma vel í ljós á þeim samkomum. Gefur frá sér sjálfsánægju og vellíðunarstunu
Ælir blóði
Þú myndir kannski ekki æla blóði væni ef þú borðaðir meiri þorramat.
Lætur sverfa til stáls og færir Sverfli stóran þorrabakka
Mér finnst Pizzur góðar. En að öllu ganni sleppt þá borða ég mig ævinlega pakksaddann á Þorrablótum þótt ég sniðgangi súrmatinn.
Ælir blóði
Þú myndir kannski ekki æla blóði væni ef þú borðaðir meiri þorramat.
Lætur sverfa til stáls og færir Sverfli stóran þorrabakka
Jú ef hann ælir blóðmör.
Mér finnst pizzur góðar líka. Eigum við að stofna Pizzuþráð.
Nei nei ég er bara að gefa í skin að ódýrara er að panta Pizzur en þorrabakkann. Og þorrablót snýst aðalega um hitting og að borða saman. Því væri róðurinn léttari ef pizzir kæmust á Þorramatseðilinn og fleiri fengjust til að koma.
Hver ældi á flatkökuna mína?Klórar sér í höfðinu
Þorramatur er hnossgæti. En því miður fæst hann ei hér í sveit. Gestir færa mér stundum hákarl, mér til mikillar ánægju. Reyndar er búið að biðja mig fjandsamlega að opna ekki svoleiðis sælgæti innandyra. Það skal tekið fram að svið og sviðasulta eru óæt og ættu ekki að teljast mannamatur, fyrir utan tunguna. Einkennilegt að eta veðurbarið skinnið af skjátum. Ekki er skinnið etið af restinni af skrokknum, nema af löppunum ef svo ber við og eru þær einnig ómeti.
Ljómandi. Ljómar upp Þú mátt fá tunguna, hver veit hvað hún hefur sleikt, ég skal borða allt annað af sviðunum.
Ég borðaði einu sinni þorramat en ekki lengur. Kannski í mesta lagi rófustöppu og kartöflur ef þær eru í boði með hangikjöti. Kannski maður ætti að finna upp tófú-svið eða baunapunga til að geta verið með!
Ég borðaði einu sinni þorramat en ekki lengur. Kannski í mesta lagi rófustöppu og kartöflur ef þær eru í boði með hangikjöti. Kannski maður ætti að finna upp tófú-svið eða baunapunga til að geta verið með!
Ég hef aldrei sett þennann ósóma inn fyrir mínar varir, sem kallast súr matur eða hrútspungar. Baunapungar, þú segir nokkuð! Ætli ég vilji ekki miklu frekar halda áfram að snerta mannspunginn í húmi nætur þegar kvöldroðinn færir mér glundroðann inn í hús Gefur frá sér vellíðunarstunu af tilhlökkun til næturinnar
Það er naumast erótíkin á einu heimili! Maður segir ekki annað.
WRARRRR segi ég nú bara, græneygð ég er á leiðinni heim til þín. Ekkert græði ég á því að hanga heima hjá mér.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
WRARRRR segi ég nú bara, græneygð ég er á leiðinni heim til þín. Ekkert græði ég á því að hanga heima hjá mér.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Bíddu, bíddu, ég á bara EINN mannspung sem er frátekinn, hann er bara handa mér. En ég skal fara út í búð og finna einn góðann mannspung handa þér áður en þú kemur.‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið› Ekki þýðir að bjóða þér bara upp á kaffi.
Misjafn er nú smekkurinn. Ég held mig nú bara við súru hrútspungana og þetta hefðbundna gúmmelaði Glottir eins og fífl
Ég sá einmitt í búð áðan auglýst "Súr Eistu".
Það sem mér fannst hinsvegar verst, var að það var ekki tekið fram af hvurslags kvikindi þessi eistu voru og þorði ég þar með ekki að taka neina áhættu, ef þetta væru ef til vill eistun úr einhverjum öldruðum samborgara okkar sem hefði gefið upp öndina fyrr á árinu.
Nema ef það hefði verið Færeyingur.
Þá hefði ég skellt mér á þau.