Ömm....
Versta ERLENDA kvikmynd sem ég hef séð hlýtur nú að vera SILENT HILL, ég meina, ég gekk bara út.
Versta íslenska....ég horfi bara ekki ofleiknar og lélegar íslenskar myndir.
Alversta erlenda kvikmyndin sem ég hef séð er án efa "Friðrik var fingraður" með Græna-Tomma í aðalhlutverki.
Allar íslenskar kvikmyndir sem ekki skarta Sveini M. Eiðssyni eru jafnlélegastar!
Ég hef bara einu sinni gengið út af mynd í bíó, og það var hryðjuverkið 16 Blocks. Sem betur fer hafði ég ekki borgað fyrir miðann..
Versta Íslenska mynd? ..
Tjah, ég held að það þurfi nú bara ekkert að fara frekar út í þá sálma.
Ég spyr samt, afhverju voru allir að sjá Opinberun Hannesar? Ég þurfti ekki að ganga svo langt til að komast að því að hún er hörmung.
Ofmetnustu myndir allra tíma hljóta að vera þessar bévítans Stjörnustríðs-dellumyndir. Aldrei hef ég getað skilið fólk sem nennir að horfa á þetta aftur og aftur og aftur. Fyrsta myndin er fjórða myndin, sjötta myndin er þriðja myndin,önnur myndin er fimmta myndin, Hátíðamyndin er ekki til af því að leikstjórinn hefur þó vit á að skammast sín fyrir hana, og þetta étur fólk upp! Má ég þá heldur biðja um Star Trek.
Stingur Tinu-vúdú dúkkuna ítrekað í höfuðið
Löðrungar Tinu með klingónskri orðabók
Mar's Villa. Skelfileg kúng fú mynd. Verst var að ég fékk vitrun í draumi að ég skyldi sjá hana. Eftir það hef ég ekki treyst vitrunum mínum, sem hefur reyndar bjargað lífi ansi margra.
...Ég spyr samt, afhverju voru allir að sjá Opinberun Hannesar?...
Ástæða þess var sýning hennar á skylduáskriftarsjónvarpsstöðinni.
...Ég spyr samt, afhverju voru allir að sjá Opinberun Hannesar?...
Ástæða þess var sýning hennar á skylduáskriftarsjónvarpsstöðinni.
Það er nú hægt að slökkva á sjónvarpinu. Mig grunar að flestir hafi gert það og fáir horft á meira en 5-10 mínútur af ódæðinu.
Hm, erfitt er að velja verstu útlensku myndina en sú íslenska er að sjálfsögðu Opinberun Hannesar.
Hún var kannski léleg, en hún var að minnsta kosti ekki eins drepleiðinleg og Hvíti víkingurinn.
Því erum vjer sammála. Vjer efumst m.a.s. stórlega um að Opinberun Hannesar sje ljelegasta íslenska bíómyndin (þó góð sje hún eigi).
Lengi vel var ræman Showgirls sú mynd sem ég taldi til mest æluvaldandi kvikmyndar sem til væri... þangað til ég sá Dude Where is mæ Car... þessar örfáu heilafrumur sem maður átti eftir frömdu umvörpum sjálfsmorð meðan á þessum ósköpum stóð.