Hér er örstutt lína,
til sætra stelpna frá Kína.
Með dökka hvarmasteina sína,
lokka tinnu svarta og fína.
Með góðgæti diska krýna,
og af breiðu brosi skína,
Sem vermir sálu mína.
Lítið form á þessu enda sett saman í hasti.
Eftir þessa frammistöðu þá verð ég nefna að til þess að leggja fram kveðskap þá er mælt með því að fara eftir bragfræðireglum. Slóðin www.rimur.is er tilvalinn vettvangur til að lesa sér til um hvernig setja skal saman svo sem eina og eina vísu. Þetta er allt að koma hjá þér, hef séð verri skáldníð en þetta.
Þemað er nú fallegt og kærleiksríkt. Ég mun kikja á þetta áður en ég níðist næst. Þakka þér fyrir ábendinguna.
Hefði nú ekki verið nær að skrifa félagsrit um þetta frekar en að fórna þráðarými fyrir svona ómerkilegtheit, nýliðinn þinn?
Hefði nú ekki verið nær að skrifa félagsrit um þetta frekar en að fórna þráðarými fyrir svona ómerkilegtheit, nýliðinn þinn?
Draugur...
Hún Vigga fór eitt sinn til Kína
það var allt í þessu fína
þar ljósir lokkarnir hrúndu
af Línu og henni Mundu.
; Komu allar sköllóttar til baka.