Já og hér eru myndir af aðalhetjum draumasteinsins:
Rúfus aðal gaurinn með hundinn Albert
The Dream Maker og Albert
Já og btw, Líf í Nýju ljósi, Einu sinni var og Sú kemur tíð voru bestu þættir í heimi!
Jafnt fræðandi og skemmtilegir.
Ég dýrkaði taugaboðin í Líf í Nýju Ljósi!
Þeir ættu að byrja að sýna þá aftur.
Eða gefa þá út...
Jáhérna !! Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ég man þá tíma sem brjóst voru ekki til sýnist á lútnum
Ég held ég þekki þessa stelpu. Hvort hún var ekki með mér í leikskóla. Klórar sér í höfðinu
Hún er allavega mikið að skoða okkur.
Við skulum ekki hætta á að saklaus börn sjái þessa mjólkurkirtla og sturlist af firringu sem leiði áhyggjusama foreldra til að nauða í greyið ritstjórn.
Sýnum háttsemi.
Mig minnir að ég hafi hitt hana uppi á húð- og kynsjúkdómadeild hér um árið.
Ég minni á að sumir eru í vinnu, og sumir þeirra eru innan um fólk í vinnunni.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Ég minni á að sumir eru í vinnu, og sumir þeirra eru innan um fólk í vinnunni.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Glottir eins og fífl Jæja...
Êg veit upp à mig sökina með mjólkurbùin, en þetta kom þegar ég gùgglaði strumpunum.
-Tàrast-
Ég man eftir Kaup Kaups og þeim ógurlegu völdum sem ég hafði þar. Ljómar upp en fær síðan heiftarlegt nostalgíukast og verður að leggja sig
Ég man þegar þrettán ára strákar voru sætir töffarar. Ljómar upp
Ég man þegar unglingar voru stórhættuleg fyrirbæri, og börn tóku á sig stóran krók til að forðast að mæta kvikindunum.
Við munum þegar unglingar töldu fínt að skarta móhíkanakambi.
Hvað áttu við með því? Lítur Gimlé hornauga
Ég man þegar unglingar voru stórhættuleg fyrirbæri, og börn tóku á sig stóran krók til að forðast að mæta kvikindunum.
Ég man líka eftir þessu.
Unglingarnir þegar við vorum krakkar voru stórhættulegir.
Núna vita krakkarnir að unglingar geta ekki gert rass við þau.
Ég sem hlakkaði svo til að verða scary unglingur!