— GESTAPÓ —
Simpsons spekingar sem og aðrir athugið !
» Gestapó   » Almennt spjall
     1, 2  
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 7/11/06 20:17

Framleiðendur þáttanna eru líklega að fylgjast með okkur hér !

Þið ykkar sem eigið seytjándu seríu á hörðum diskum ykkar, vinsamlegast skoðið gaumgæfilega þátt númer 1702, sem heitir "The girl who slept too little" og farið á tíma 7:37, og segið mér hvaða lógó ber fyrir augu.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 7/11/06 22:26

Uss, þetta er þjófnaður og ekkert annað.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/11/06 09:58

Fyrir okkur sem eigum ekki þennan þátt í tölvu eða dvd væri ekki úr vegi að koma með mynd...

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 8/11/06 10:46

Þetta þýðir auðvitað að Simpsons er sannleikurinn! ‹Ljómar upp›

♦ brjálaði demanturinn ♦ valkyrja ♦ elvis ♦ nýliðaskelfir, konan með hinn stimpilinn ♦ blámannagrúppía ♦ fæst nú einnig með háskólagráðu ♦
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 8/11/06 12:28

Hver er nógu snjall til að koma með mynd af þessu fyrirbæri ?

‹Hendir snjóbolta í Þarfa›

Þarfiiiiii.‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Feiti Einbúinn 8/11/06 13:17

Eitthvað kannast ég við þetta merki þarna. ‹Klórar sér í höfðinu›

Til gamans má geta að hægt er að horfa á þáttinn í fullri lengd hér:

Styttri hlekkur á þáttinn

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Finngálkn 8/11/06 13:29

Feiti Einbúinn mælti:

Eitthvað kannast ég við þetta merki þarna. ‹Klórar sér í höfðinu›

Til gamans má geta að hægt er að horfa á þáttinn í fullri lengd hér:
Styttri hlekkur á þáttinn

Frábært hjá þér að grafa upp þáttinn til þess að aðrir illa tölvuvæddir gestapóar eins og ég geti notið hans! - Takk fyrir takk!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Feiti Einbúinn 8/11/06 13:32

Ég ætlaði að gera það á einhvurn hátt... kemur út á það sama þó hann sé settur upp sem kvæði ‹Glottir eins og fífl›

‹Fer og les í gegnum allar tölvubækurnar sínar›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 8/11/06 13:36

Vá - þetta er rosalegt. Baggalútssamsærið nær augljóslega víðar en mann óraði fyrir. Það er vel.

En viltu annars ekki skeyta þessum tengli inn í alvöru hlekk, Feiti? Þetta hlýtur að vera einn sá allengsti tengill sem ég hef nokkurn tímann séð!

Þetta má gera einhvern veginn svona:

Til gamans má geta að hægt er að horfa á þáttinn í fullri lengd hér.

(Gerðu 'Vitna í' á þetta innlegg mitt til að sjá hvernig það er sett upp)

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Feiti Einbúinn 8/11/06 13:39

Þarfagreinir mælti:

‹Lítur í kringum sig og athugar hvort þarfi sé nokkuð að fylgjast með honum í raunheimum›

Ég var einmitt rétt að klára að setja þetta upp þannig ‹Ljómar upp›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 8/11/06 13:40

Góður. Þá er bara að kenna Finngálkninu að vitna ekki alltaf í allt sem hann vill svara í fullri lengd.

‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 8/11/06 13:42

Hvar er Vlad núna?

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Feiti Einbúinn 8/11/06 13:44

Þarfagreinir mælti:

Góður. Þá er bara að kenna Finngálkninu að vitna ekki alltaf í allt sem hann vill svara í fullri lengd.

‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›

Ég breytti nú líka hlekknum mínum þannig að hann vísar hingað. ‹Felur sig undir þræðinum ef útsendarar FOX skyldu reka nefið hingað inn›

GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 8/11/06 17:27

Það eru mjög líklega óvinir ríkisins sem hafa stolið lógóinu, þetta útskýrir afhverju það sést minna en áður og fjandans apinn er útum allt.‹Starir þegjandi út í loftið›

Hvar er RASSAT ?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 9/11/06 00:38

‹Hrökklast afturábak um tugi metra og hrasar að lokum um kóbaltstyttu af merki Baggalúts›
Þetta er grafalvarlegt mál er krefst harðra og miskunnarlausra aðgerða. Rjett í þessu tókum vjer einmitt eftir að Baggalútsmerkið er hvergi að finna á Gestapó og einungis á einum lítt áberandi stað neðst á sjálfri forsíðu Baggalúts. Leggjum vjer hjer með formlega til að þegar í stað verði opinberlega lýst yfir formlegu stríði á hendur þeim óvinum ríkisins er stálu merkinu. Hverjir eru það annars er stálu því ? Framleiðendur Simpson-þáttanna ? Eða kannski óvinir framleiðenda Simpson-þáttanna til að plata oss Bagglýtinga til að lýsa yfir stríði gegn þeim ? ‹Klórar sér í höfðinu›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 9/11/06 00:52

Það skiptir ekki svo miklu hver á hlut að máli hér.
Ég held að við ættum að leggja af stað nú þegar í óskipulagðar óeirðir og ringulreið með tilheyrandi sprengingum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 9/11/06 00:58

‹Blandar mólotovkokkteila og dreifir þeim til fólks›

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 9/11/06 01:06

‹Kemur með tómata, kjarnorkuflugskeyti, heykvíslar, grjót, skriðdreka, Molotov-kokkteila og nokkrar MOAB-sprengjur svo hægt verði að efna til óeirða›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
LOKAÐ
     1, 2  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: