Ég er að fara að skrapa litinn af augabrúnunum, þvo á mér hárið, klæða mig og fara í vinnuna. Fékk eiginlega nóg af fullu fólki eftir barvaktina í gær, en bleh...
Ég er að fara að spila póker. Ég elska póker. Samt ekki með teningum
Ég er að fara að fara að koma mér í að fara að drullast til að halda áfram með tiltektina...
Ein þriggja skúffu kommóða og ofan á henni komin í höfn... bara restin af íbúðinni eftir... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
ég ætlaði að hjálpa Hexia de Trix að taka til, en núna er ég að fá mér öl eftir vel unnið verk.
Ég er að bíða eftir að mútta hringi og láti mig skuttla sér heim svo ég geti fengið mér öl.
Ég er að fara inn í rúm.
Ætli maður fari ekki líka bráðum í rúmið til að sofa.
Henda Tigru, Rauðbirni og Rýtingu út og fara að sofa fljótlega.
Skrifa rannsóknarskýrslu
Ég er að fara að hafa það gott í kvöld. Hugsanlega fæ ég mér einn eða tvo bjóra. Ljómar upp
Ég er að fara að sofa. Næturóþolið farið að láta á sér kræla.
ÞAÐ SNJÓAR! ÞAÐ SNJÓAR!!
ALVÖRU SNJÓ!
Sem sagt:
Ég er farin út að hlaupa í snjónum!
Koma mér í gang að læra. Rosalega getur það tekið langan tíma...