Mér er spurn. Er maðurinn með barta? Er hann fífl? Er hann alger aumingi með hor og róni sem getur ekki neitt eða er verið að tala um vellaunaðan ríkisstarfsmann?
Að sjálfsögðu getur hann verið allt þetta, en hér er þó einungis spurt um nákvæmt starfsheiti. Skjótið!
Þið getið meira að segja spurt mig hvort hann sé í valdamikilli stöðu, hvort hann fái borgað svart eða að um þrælavinnu sé að ræða. Hér eru starfsheitin ofurhetja, leynimorðingi og trúður líka lögleg.
Er hann forseti?
Nei, svo valdamikill er hann ekki.
Er hann verkamaður?
Kannski ekki verkamaður, en hann er í það minnsta ekki hálaunaður.
Tónlistarkennari?
Nei.
Ehem, kannske sundkennari?
Er maðurinn menntaður til starfs síns?
Ekki sundennari, ekki menntaður til starfs síns, ekki framsóknarplebbi svo ég viti og ekki heldur langskólagenginn. HAnn tengist aðeins matvælaiðnaðinum á einn eða annan hátt....
Uppvaskari eða máske svokallað glasabarn á skemmtistað ?
Samlokugerðarmaður?
Afgreiðslumaður?
Uppvaskari eða máske svokallað glasabarn á skemmtistað ?
Mikið rétt. Maðurinn starfar við hið mjög svo vanmetna starf, uppvaskari. Ríkisarfinn á leik.