Tja...tæki ég boði Önnu fengi ég aðgang að öllum glötuðu sokkunum mínum...en krumpa býður stöðu innan hirðarinnar...Starir þegjandi út í loftið
Ok, ég býð skipti. Þú gætir tekið við stöðunni Verndari alls karlkyns.
Allt karlkyn Tina, ég býð þér allt karlkyn (fyrir utan Þarfa auðvitað)!
Þú mátt fá lyftaraprófið mitt ef ég fæ hann, þá hef ég enga þörf fyrir það hvort eð er.
Verð kominn með þennan fína sykurpabba.
Hmmm, kann Þarfi að taka til, þrífa eldhús og berjast við tölvuveirur ?
ég bíð kassa af kókómjólk í hann.
Uhhh... nei nei, hann kann ekkert af þessu!
Setur Simpsons í dvd-ið og gefur Hvæsa súkkulaði með og vonar svo að hann gleymi öllu um þetta uppboð
Hugsar sér gott til glóðanna
Hjá hverju ykkar gæti ég pyntað hann mest?
Ég sé lítinn tilgang í að reyna að kaupa hann sjálf, því að hann losnar aldrei við mig hvort sem er... en ég gæti hinsvegar stutt einhvern í kaupum... bitið í rassa hér og þar, ef ég fæ að halda fyrri samskiptum við Þarfa á sama veg.
Hugsar sig um Sameiginleg kaup á einu stykki Þarfagreini segirðu? Mér finnst þetta sérlega góð hugmynd og falast hér með eftir tígrisdýrarassabitsstuðningi. Þó verð ég að fara fram á það að einungis mitt nafn komi fram á kaupsamningi en þú heldur þó öllum áunnum réttindum varðandi samskipti við vöruna...
Díll?!
Díll.
Þú verður skráður eigandi fyrir honum, en ég fæ að halda áfram tilraunum mínum á honum, mannkyninu til góðs.
Glottir
TINA! Vantar þig lífvörð eða einhvern til að bíta í rassa?
"Verndari" alls karlkyns?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Uppboðinu lýkur klukkan tíu í kvöld!
(ef ég man eftir því).
Sko hugsaðu þér Tina... ef þú hefur titilinn verndari alls karlkyns, er allavega enginn annar með hann.
Glottir
Hvað þú hinsvegar gerir við hann er ekki okkar mál.
Einmitt, starfssviðið er mjög vítt og mikið svigrúm til þróunar á þeim verkefnum sem titilhafi tekur sér fyrir hendur...
En boðið hljóðar þá uppá:
* Gjafabréf á Kaffi Blút (að upphæð milljón trilljón böggur)
* Sérstakur leyniaðgangur að landi sokkaálfanna
* Titillinn Verndari alls karlkyns (starfslýsing óljós)
* Lífvarsla og rassabítingar (þinn eigin (ef þú fílar það) eða annarra) í boði Tigru
* Þessi fallega mynd:
Kókómjólkurboðinu er umsvifalaust hafnað. Ég drekk ekki kókómjólk.
Þú getur fengið hvað sem þú vilt.....
Ég er hins vegar VITLAUS í kókómjólk!
Einmitt, starfssviðið er mjög vítt og mikið svigrúm til þróunar á þeim verkefnum sem titilhafi tekur sér fyrir hendur...
En boðið hljóðar þá uppá:
* Gjafabréf á Kaffi Blút (að upphæð milljón trilljón böggur)
* Sérstakur leyniaðgangur að landi sokkaálfanna
* Titillinn Verndari alls karlkyns (starfslýsing óljós)
* Lífvarsla og rassabítingar (þinn eigin (ef þú fílar það) eða annarra) í boði Tigru
* Þessi fallega mynd:
Slegið í
Fyrsta!
Annað!
...
Oooog Þriðja sinn!
Til hamingju dömur!
Gefur lögmanni merki um að fylla út nauðsynlega pappíra
Þetta verður tilbúið eftir nokkrar vikur.
Lætur lögfræðideild AnnaPannaGroup fara yfir allt saman Þetta virðist allt vera í góðu lagi, hvenær heldurðu að ég geti fengið hann afhentan?!
Ljómar upp og byrjar að plana ýmislegt til að gera Þarfa lífið leitt
Pappírarnir virðast í lagi, svo þú færð hann bara á blaðamannafundinum.