Ég halaði niður leik í símann minn fyrir nokku og færði úr stafrænu formi í raunveruleikann hér í vinnunni.
Þetta spil hefur nú skapað mikla lukku og ekki verra að deila skipulaginu með ykkur.
Notaðir eru 2 staðlaðir spilastokkar og gefin 7 spil á hvern leikmann
Þeir eiga svo að losa sig við spilin en mega aðeins setja eitt út í einu í sömu sort eða með sama númeri.
Ef sett er út 7 þarf næsti maður að draga tvö spil en hann getur komist undan því með því að setja sjálfur út 7 en þá þarf næsti leikmaður að draga fjögur spil. Verður þetta því mikil skemmtun þegar búið er að leggja út nokkrar 7.
Ásinn snýr hringnum við.
Gosinn breytir um sort eins og áttan gerði í olsen og má leggja niður þó svo að hann sé ekki í sömu sort.
8 bannar næsta manni að gera en líkt og 7 er hægt að verjast því með sinni eigin 8.
Ef leikmaður getur ekki lagt út spil í sömu sort eða sama númeri þarf hann að draga eitt spil og má leggja það út ef það er hægt.
Góða skemmtun.
Virðist í fljótu bragði minna mjög á hið skemmtilega spil Uno Ljómar upp. Þar eru hinsvegar eigi notuð 'venjuleg' spil.
Leggur út áttu
svindlar
heggur fingur af Ívari
Það er ljótt að svindla!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
tekur fingurinn og stingur honum upp í sig
á einhver eld
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Jæja... best að ná sér í UHU lím!