Þið vitið hvað þið eigið að gera.
Nei? Hvað?
Klórar sér í höfðinu
Svarar engu
WTF?
Er þetta græna á brauðsneiðinni minni hollt fyrir mig? Ætti ég að fá mér bita?
Nei? Hvað?
Klórar sér í höfðinu
Ég þakka fyrir spurnina, til að svara þér þá eigið þið að varpa fram fyrirspurnum og öllum er að sjálfsögðu frjálst að svara.
Áttum við að svara þessu?
Það fer eftir því hvað þú meinar með orðinu "þessu" ef þú átt við innleggið mitt þá er svarið "nei", ef þú áttir hinsvegar við innleggið frá Galdrameistaranum þá er svarið "ef þig langar til".
WTF?
Ef ég skil þig rétt þá ert þú hér að rita setninguna "What The Fuck?" í tregum rithætti. Spurningin sú, ef spurningu skyldi kalla, gæti þýtt á íslensku "Hvað í fjandanum?" og svarið er já.
Er þetta græna á brauðsneiðinni minni hollt fyrir mig? Ætti ég að fá mér bita?
Potaðu í það, ef það heldur formi sínu er líklegast um einhverskonar græn meti að ræða og telst óhætt að éta þó það þjóni ekki miklum tilgangi. Ef þetta græna breytir um lögun eða afmyndast á einhvern hátt gæti verið um einhverskonar myglu að ræða eða grænt pesto. Hvort tveggja er með öllu óhæft til átu.
Af hverju minnir myndin af Gvendi mig á blöndu af Derrick og afa mínum?
Var afi þinn kannski Derrick?
Eða var Derrick kanski afi þinn?
Með fullri virðingu fyrir þeim mæta öðlingi Gvendi þá vil ég heldur fá fyrirspurnasvæði þeirra Bagglýtinga aftur. Það er sá þáttur sem ég sakna einna mest við fyrri útgáfur.
Það er leitt ef fyrirspurnirnar deyja út því þær eru í raun rótin að gestapó og nokkru eldri. Í eldgamla daga var einungis opið fyrir fyrirspurnir sem undu upp á sig og urðu að eins konar spjalli sem endaði allt á spurningamerki.
Já, sei sei, það voru góðir tímar, þegar við vorum ungir sprelligosar, heyr á eindemi.
Hallar sér aftur í ruggustólnum, með pípuna í munni og horfir dreymnum augum á sólsetrið
Ertu semsagt að segja að heimurinn endi sem eitt spurningamerki ?
Sest á gólfmottuna fyrir framan ruggustól Hakuchis og rifjar líka upp árdaga fyrirspurnanna
Jæja, best að blása lífi í þennan þráð, með því að bera fram fyrirspurn
ööö..í hvaða heimsálfu er Ísrael?
Hver er endanleg niðurstaða reglubundinna handahófsrannsókna á tíðni slembiatburða?
Verða fyrirspurnir einhverntíma endurvaktar á Gestapó ?
Á ég að reyna að svara undangengnum spurningum?