sinni þitt er sjúklegt pabbi
sérðu ekki kveðskap minn?
hættu þessu, kæri, kvabbi
komdu með mér, eitthvað finn
Grána tekur gamalt hár
og gamanið að kárna
Ef Skabbi ekki skrifar pár
skal mér fara að sárna!
Sárt ég hef víst saknað þess
sælt að koma aftur
Nú ég orðinn aftur hress
eflist nú minn kraftur.
Kraftar þínir kannske þverra
á komandi tíð
En ég vona að þú herra,
áfram haldir kveða níð
Níð þú ljúfan nefnir oft,
nautnir þínar þekkjum.
Skríða uppá skítugt loft,
skaka okkar rekkjum.
(Minz er ryðgaður í þessu öllu, þið bara sleppið mér úr ef þetta er vitlaust kveðið)
-
----------------------------------------------------------------------------------------------
Þetta er nú bara ljómandi hjá þér. Í annarri línu vottar reyndar fyrir ofstuðlun = "nautnir þínar þekkjum" - en það má auðveldlega breyta því, t.d. í "nautnir slíkar þekkjum", eða "nautnirnar við þekkjum" ... / vinsemd - z n ó j -
Þessi þráður varð til fyrir slysni viðs skulum nota hinn hann er alveg eins.
Ástarkveðja.
-------------
Jamm. Einmitt akkúrat það sem ég vildi sagt hafa - en gleymdi bara að segja það. / - z n ó j -
Það var þá aldeilis að ég hlýta að hafa kveðið illa...
-
það var nú gott