Hví í dauðanum er ég titlaður nýgræðingur? Og hví er ég eigi lengur friðargæzluliði?
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Lestu þræðina.
Hér eru allir nýgræðingar og engin fortíð er komin inn ennþá.
Titlar eru ekki komnir strax held ég.
Þetta kemur allt með tímanum.
Hamstrar sleikjó
Mér finnst yndislegt að vera nýgræðingur og enn betra að geta ekki skrifað félaxrit!
Stekkur hæð sína og faðmar skuggann sinn!
Mér finnst yndislegt að vera nýgræðingur og enn betra að geta ekki skrifað félaxrit!
Stekkur hæð sína og faðmar skuggann sinn!
Þú ert líka skonsa.
Mér brá nú bara þegar ég kom hérna inn eftir sumarfrí baggalúts. Mér fannst gamla útlitið mikilu betra og skil nú bara ekki afhverju öllu var eytt. Að því gefnu vill ég helst fá að vita afhverju þessu var hent?, er þetta svona öll sumur eða hvað?
Ég bara datt um sjálfa mig og skammaði GiR fyrir að brjóta nýa Baggalútinn.
Það hjálpaði bara ekki neitt.
Það var og.
Nei. Það var GiR.
Og er farinn að sofa fyrir löngu.
Hér voru allir óbreyttir við upphafið í gærkveldi. Nema ég og einhverjir aðrir fengum gæsluréttindin.
Ég er breyttur, því Sívertsen kantor er búinn að ræna af mér ráðherraembættinu.
Mér brá nú bara þegar ég kom hérna inn eftir sumarfrí baggalúts. Mér fannst gamla útlitið mikilu betra og skil nú bara ekki afhverju öllu var eytt. Að því gefnu vill ég helst fá að vita afhverju þessu var hent?, er þetta svona öll sumur eða hvað?
Þetta er 6. útlit Baggalúts, það er hefð fyrir því að útlitið versni með hverju árinu.
Ástæðan fyrir því að öllu var eytt er að nauðsynlegt þótti að uppfæra spjallborðið og setja á nýjan vefþjón vegna ágangs tölvuþrjóta, sennilegast Haþórs nokkurs Hübners. Það þýddi að flyja þurfti öll gögn á milli gagnagrunna, og það náðist ekki í tæka tíð vegna leti tækniórangútananna - og get ég engu lofað um það hvenær gamlir þræðir verða aðgengilegir.
Einnig - og það er mun verra - varð að setja upp nýjustu útgáfu spjallsins sem er vitanlega án ALLRA FOKKINGS ENDURBÓTA SEM ÉG HEF, Í SVITA ANDLITS MÍNS, GERT Á GALLBÖLVUÐU KERFINU UNDANFARIN 3 ÁR!
Þess vegna er allt í klessu.