lokkar nokkuð flokkinn frjór
flakkar akker skak við
þokkaskrokkur skokka fór
skakkur hjakkar lak við
Ég tók allt í einu eftir því að þetta er þráður núm er 100 hér á kvæðasvæðinu. Þykir mér við hæfi að varpa fram parti nú á þessum merku tímamótum
þéttir liggja þræðir hér
þessi er númer hundrað
botni nú hver sem getur og vill
lokkar nokkuð flokkinn frjór
flakkar akker skak við
þokkaskrokkur skokka fór
skakkur hjakkar lak við.
Út á engi Mangi er
engist lengi um daginn
Barbapabbi babblar hér.....
og brá sér svo í bæinn.
þéttir liggja þræðir hér
þessi er númer hundrað
fjandi mikill fjöldinn er
feikn mig getur undrað
stuðla og rímsins böndin ber
brag fær ekkert sundrað
hana þá er það búið