— GESTAPÓ —
The Domain Server Does Not Exist
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
GESTUR
 • LOKAР• 
Úlfamaðurinn 29/5/06 15:11

Nú er ég að velta fyrir mér mjög alvarlegri spurningu

ERUM VIÐ BAGGALÚTÍNGAR Í RAUN EKKI TIL?

Haraldur var að lýsa yfir að Lútnum yrði lokað 1. júní 2006. Ég reyndi að finna www.laggalutur.is, og fann ekkert, og komst að þeirri niðurstöðu að þar með séu það í raun við Baggalútingar sjálfir sem erum í raun og veru ekki til. Einhver veit þetta og er að hylma yfir þeirri staðreynd.

Spurningarnar sem ég spyr sjálfann mig að og þar með Harald, er hvort að Haraldur sé þá sjálfur í raun til, og enginn annar sem skrifar á Baggalútarsíðunni nema hann - ef svo er, þá er Haraldur klofinn persónuleiki.

Þá erum við hinir Baggalútingarnir í raun aðeins hluit af hægfara en öruggri klofningu Mr. Haralds sem persónuleika.

Hrmhrm - þar sem ég er úlfamaður, er ég þá sú hlið Haralds sem lýtur að kynlífi þar sem ég er kafloðinn frá hvirfli til ylja? Er ég sem sagt reðurtákn?
Ef ekki, þá er ég örugglega aðeins til í hugarheimi Haralds sjálfs.

Það merkir að þegar Haraldur lokar Baggalútarsíðunni 1sa næsta mánaðar hættum við öll hin að vera til og leysumst upp og verðum annað hvort eitthvað annað eða ekki neitt, allt eftir því hvernig sálfræðingar og reyndar geðlæknar líka túlka læknun kleifhuga, geðklofa og annara sálrænna kvilla,

kær kveðja,

Úlfamaðurinn (horfir á hendurnar á sér skrifa á meðan hann efast um tilvist þeirra og lætur hugann reika í leiðinni - aðeins 5 metrum fjær honum er bók í Þjóðarbókhlöðu Háskóla Íslands sem hann hugsar mikið um þessa dagana - Man into Wolf, og ráðleggur Haraldri að taka upp og lesa 2. júní n.k. Þá mælir úlfamaðurinn einnig með A Criminal History of Mankind eftir Colin Wilson,en taka skal strax fram að ekki er verið að fjalla um búskap eða kindur í þeirri bók, bara svo allir viti)

matrixs@mi.is

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Galdrameistarinn 29/5/06 15:16

Voðalegar áhyggjur eru þetta.
Það er nóg af vefsvæðum til að skoða ef vilji er fyrir hendi.

Sofandi vert á Kaffi Blút nema þegar hann er vakandi. • Skemmdarverka og hryðuverkamaður í hjáverkum, aðalega á kveðskaparþráðum.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Úlfamaðurinn 29/5/06 15:52

Í raun er siðferðilega rétt að loka vefsíðum annars lagið því að þá verður líka erfiðara fyrir internetið að finna þær og þar með okkur ef það er þegar orðið sjálfsmeðvitað,

kær kveðja,

Úlfamaðurinn

matrixs@mi.is

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 31/5/06 19:56

Úlfamaðurinn mælti:

Nú er ég að velta fyrir mér mjög alvarlegri spurningu

ERUM VIÐ BAGGALÚTÍNGAR Í RAUN EKKI TIL?

Þar eð þjer teljist til nýliða er yður e.t.v. eigi kunnugt um að vjer sýndum nýlega fram á að svarið við þessari spurningu er mjög nálægt því á vera já. Einungis vjer erum til að viðbættum einum Bagglýtingi og hugsanlega 1-2 aðilum úr ritstjórn. Allir aðrir Bagglýtingar eru Glúmur og hann er eigi til.

Sjá t.d. eftirfarandi:
http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=176&n=4263

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 31/5/06 20:14

Erum við sem sagt allir hér Framsóknarmenn?

KauBfélagsstjórinn.
LOKAÐ
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: