Er þetta gistihús fyrir aflóga gamalmenni?
Já, ellegar hressingarhæli, má bjóða þér inngöngu dularfulli maður?
Já Takk, ert þú fróður maður?
Ha, hvað segirðu? Ertu að segja að ég sé óður og graður, það passar. Skrái þig hér með í EMBLA.
Svona hættiði þessum andskotans hávaða!
Maður er að reyna að heyra í Gerði Bjarklind lesa fréttirnar, svo er veðrið á eftir !
Blótar herfilega, rífur hár sitt og hækkar í glymskrattanum
Það fer að líða að fréttum hækkar í útvarpinu
16.00 Fréttir
16.10 Veðurfregnir
16.13 Hlaupanótan
17.00 Fréttir
17.03 Víðsjá
18.00 Kvöldfréttir
18.24 Auglýsingar
18.25 Spegillinn
18.50 Dánarfregnir og auglýsingar
19.00 Vitinn
19.30 Laufskálinn
20.05 Söngvamál Tími eplablómanna
21.00 Tekst, ef tveir vilja (3:4)
21.55 Orð kvöldsins
22.00 Fréttir
22.10 Veðurfregnir
22.15 Úr tónlistarlífinu- Víóluhátíðin 2005 Garth Knox á Víóluhátíðinni
00.00 Fréttir
Leggur sig eftir matinn Nenniði að vekja mig þegar Vítt og breitt byrjar á RÚV?
Skiftir um stöð og setur XFM í botn
Hrekkur upp við lætin Hvað er þetta, eru óskalög (geð)sjúklinga byrjuð?
Mölbrýtur útvarpiðBlótar herfilega og rífur hár sitt
Hvurslags graðhestarokk er þetta ? Blótar herfilega og rífur hár sitt
Kemur með gamla góða útvarpið sitt og kveikir á gufunni
Alveg að koma fréttir.
Hlustar á miðdegistóna gufunnar, nagar harðfisk og rekur við
Samfélagið í nærmynd glymur í gufunni Hvað á maður svo að jeta?
Vaknar af værum blundi
Svona reyndu nú að ganga hljóðlega um og lækka í kassanum.
Maður er að reyna að halla sér eftir hræringinn í hádeginu.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Tekur upp neftóbaksbaukinn, skóflar á handarbakið, sýgur brot af tóbakinu í nefið en hitt hrynur á gólfið. Dregur upp vasaklút, hnerrar í hann og snýtir sér með látum. Treður klútnum aftur í rassvasann á meðan tóbakslitað hor rennur niður efri vörina
Fær á tilfinninguna að þessi þráður snúist um að hæðast að lífstíl vorum
Sleikir á sér efri vörina