Á forsíðu Baggalúts er nú er þetta er ritað eftirfarandi auglýsing:
Tapað
tvö karton af auðguðu úrani töpuðust fyrir utan skemmtistaðinn Óliver aðfararnótt laugardags. Finnandi er vinsamlegast beðinn að snúa sér til íranska konsúlsins á Íslandi.
Þeir er eitthvað vita um þetta eru beðnir um að gefa sig fram strax, til greina kemur að stofna sjersveit til að fara í ránsleiðangur. Vjer höfum í hyggju að byggja nýtt kjarnorkuver, líklega í fyrirhuguðu 'tónlistarhúsi' í Reykjavík, og tímum eigi að kaupa úraníum.
Það voru leikskólakrakkar frá leikskólanum sakleysið sem fundu þetta.Þeir nota úranið sem borðskraut og það ætti ekki að þurfa nema 10-20 alvopnaða menn til að ná þessu
Mig grunaði að það væri eitthvað meira á bak við þessar áætlanir um tónlistarhús, félagi Fuckov. 12 milljarðar fyrir smávegis af gleri var bara of augljóst.
Svo er þetta líka út við sjó og langt frá öðrum húsum...fullkomin staðsetning fyrir skotpall...
Enn grunsamlegri er hinn ótrúlega hái rekstrarkostnaður er húsið er 'tilbúið'. Segir oss svo hugur að stór hluti þess kostnaðar muni fara til kaupa á einhverju er eigi þolir dagsins ljós.
Ég heyrði ekkert, sá ekkert og veit ekkert. Enda heyrnarlaus, blindur hálfviti.